| Sf. Gutt

Tap í toppslagnum

Liverpool tapaði, í gærkvöldi, 1:0 fyrir Manchester United í toppslagnum í varaliðsdeildinni. Eftir annað tap sitt í röð á liðið nú litla möguleika á að vinna deildina.

Leikurinn var jafn frá byrjun og bæði lið fengu færi. Það besta fékk Fabian Brandy og hann var farinn að fagna þegar Guðlaugur Victor Pálsson bjargaði á marklínu. Björgun hans var talin með hreinum ólíkindum. Heimamenn komust svo yfir á 44. mínútu. Gabriel Obertan náði þá að hrista Guðlaug af sér og þrumaði boltanum upp í hornið rétt utan vítateigs.

United var nærri því að bæta við í upphafi síðari hálfleiks en Gabriel skaut rétt framhjá. Heimamenn voru sterkari lengi framan af hálfleiknum en leikur Liverpool batnaði á lokakaflanum eftir tvær skiptingar hjá John McMahon. Á 69. mínútu átti Damien Plessis skalla rétt framhjá. Ekki var meira skorað og heimamenn unnu mikilvægan sigur. 

Livrpool á tvo leiki til góða en Manchester United, sem hefur níu stiga forskot, hefur sigur í deildinni í sínum höndum. Öll von er þó ekki úti. 

Liverpool: Gulacsi, Irwin, Cooper, Mavinga, Pálsson, Amoo, Duran (Mendy 64. mín.), Plessis, Bruna, Saric og Dalla Valle (Kacaniklic 66. mín.). Ónotaðir varamenn: Hansen, Brouwer og Kohlert.
 
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv:
Guðlaugur Victor Pálsson.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan