| Sf. Gutt

Ungliði fer og annar kemur

Það er alltaf einhver hreyfing á ungliðum Liverpool. Í dag kom einn efnilegur til félagsins og annar hélt á braut. Markmaðurinn Jamie Stephens, sem er aðeins 16 ára, kom frá Swindon Town. Hann gerði samning við Liverpool til ársins 2012. Hann byrjar á að æfa með unglingaliðinu.

Um leið og Jamie mætti yfirgaf Brasilíumaðurinn Vitor Flora svæðið. Eftir því sem Liverpoolfc.tv greinir frá í dag þá var Vitor seldur til brasilíska liðsins Goiás Esporte Clube. Hann kom til Liverpool sumarið 2008 en náði aldrei að láta verulega að sér kveða með yngri liðum félagsins eða þá varaliðinu. Meðfylgjandi mynd er af Vitor Flora.

Svona gengur þetta fyrir sig hjá stóru félögunum í heiminum. Ungir piltar eru fengnir til félaganna í þeirri von að þeir séu efni í góða leikmenn. Tiltölulega fáir komast að en þá koma aðrir í staðinn til að spreyta sig. Íslendingarnir okkar hjá Liverpool, og fjölmargir fleiri, eru þangað komnir á þessum forsendum. Svo er að sjá hvað úr verður hjá þeim og öðrum.   




TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan