| Sf. Gutt

Ykkar skoðun

Á dögunum könnuðum við hvaða leikmaður ykkur, lesendum Liverpool.is, þótti standa sig best í febrúar.

Líkt og svo oft áður á þessu erfiða keppnistímabili stóð Jose Reina vaktina með sóma í marki Liverpool í þessum mánuði og hann varð hlutskarpastur í vali ykkar. Jose fékk aðeins þrjú mörk á sig og varði nokkrum sinnum frábærlega en þó líklega aldrei eins og þegar hann tryggði Liverpool sigur gegn Blackburn með magnaðri markvörslu á lokamínútu leiksins.

Það er sjaldan að menn deili sætum en það gerðist nú þegar þeir Javier Mascherano lentu jafnir í öðru sæti. Báðir stóðu sig mjög vel í febrúar og skoruðu eitt mark hvor. Hver man ekki eftir sigurmarki Dirk gegn Everton?
 
Steven Gerrard kom þriðji en hann vaknaði til lífsins í mánuðinum. Hann setti Englandsmet með marki sínu gegn Unirea í Rúmeníu. 

Jose Reina 34%
 
Javier Mascherano 21%
 
Dirk Kuyt 21%
 
Steven Gerrard 12%
 
Einhver annar 5%
 
Daniel Agger 5%
 
Jamie Carragher 2%

Heildarfjöldi atkvæða: 844.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan