| Sf. Gutt
Varalið Liverpool gerði í gærkvöldi 1:1 jafntefli við Wigan Athletic á heimavelli. Þetta var fimmtándi leikur Liverpool í röð án taps. Liðið hefur unnið þrettán af þessum leikjum. Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliðinu og lék allan leikinn.
Þetta var annar leikur varaliðsins í þessari viku og það lá fyrir að þessi leikur myndi reyna á liðið. Ekki auðveldaði það þreyttum leikmönnum lífið að völlurinn var rennandi blautur og þungur yfirferðar.
Wigan fékk fyrsta færið en Liverpool ógnaði rétt á eftir. Daniel Ayala skallaði fyrir markið en markmaður Wigan náði boltanum áður en Lauri Dalla Valle komst í hann. Enn ógnaði Liverpool þegar Svíinn Alex Kacaniklic skallaði að marki en Lee Nicholls varði vel í marki Wigan. Lauri fékk síðasta færið í hálfleiknum. Francisco Duran sendi þá fyrir markið á Lauri en skalli hans fór í þverslá. Ekkert hafði verið skorað þegar fyrri hálfleik lauk.
Liverpool náði yfirhöndinni í byrjun síðari hálfleiks. Jordy Brouwer hitti ekki boltann í góðu færi og og svo átti Steven Irwin skot sem Lee varði. Liverpool náði svo forystu á 57. mínútu. Francisco sendi aukaspyrnu fyrir markið, Jordy skallaði til Martin Kelly sem þrumaði í mark af stuttu færi. Þetta mark hefði kannski átt að duga enda vörn Liverpool mjög sterk en gestirnir náðu að jafna tveimur mínútum seinna þegar Mustoe skoraði beint úr aukaspyrnu.
Liverpool sótti aftur í sig veðrið en náði ekki að skora. Það fækkaði í liði Wigan á lokamínútunni þegar Steven Boothman var rekinn af velli eftir að hafa sparkaði Jordy niður. Rétt á eftir fékk Lauri Dalla Valle upplagt færi til að gera út um leikinn. Hann komst þá inn á vítateiginn en markmaður Wigan bjargaði með góðu úthlaupi. Jafntefli varð því niðurstaðan. Liverpool tapaði dýrmætum stigum en liðið getur þó enn vel unnið deildina.
Liverpool: Hansen, Kelly (Flanagan 71. mín), Mavinga, Ayala, Guðlaugur Victor, Duran (Cooper 60. mín.), Dalla Valle, Irwin, Brouwer, Plessis (Saric 68. mín.) og Kacaniklic. Ónotaðir varamenn: Oldfield, Kohlert.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Francisco Duran.
TIL BAKA
Jafntefli hjá varaliðinu
Varalið Liverpool gerði í gærkvöldi 1:1 jafntefli við Wigan Athletic á heimavelli. Þetta var fimmtándi leikur Liverpool í röð án taps. Liðið hefur unnið þrettán af þessum leikjum. Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliðinu og lék allan leikinn. Þetta var annar leikur varaliðsins í þessari viku og það lá fyrir að þessi leikur myndi reyna á liðið. Ekki auðveldaði það þreyttum leikmönnum lífið að völlurinn var rennandi blautur og þungur yfirferðar.
Wigan fékk fyrsta færið en Liverpool ógnaði rétt á eftir. Daniel Ayala skallaði fyrir markið en markmaður Wigan náði boltanum áður en Lauri Dalla Valle komst í hann. Enn ógnaði Liverpool þegar Svíinn Alex Kacaniklic skallaði að marki en Lee Nicholls varði vel í marki Wigan. Lauri fékk síðasta færið í hálfleiknum. Francisco Duran sendi þá fyrir markið á Lauri en skalli hans fór í þverslá. Ekkert hafði verið skorað þegar fyrri hálfleik lauk.
Liverpool náði yfirhöndinni í byrjun síðari hálfleiks. Jordy Brouwer hitti ekki boltann í góðu færi og og svo átti Steven Irwin skot sem Lee varði. Liverpool náði svo forystu á 57. mínútu. Francisco sendi aukaspyrnu fyrir markið, Jordy skallaði til Martin Kelly sem þrumaði í mark af stuttu færi. Þetta mark hefði kannski átt að duga enda vörn Liverpool mjög sterk en gestirnir náðu að jafna tveimur mínútum seinna þegar Mustoe skoraði beint úr aukaspyrnu.
Liverpool sótti aftur í sig veðrið en náði ekki að skora. Það fækkaði í liði Wigan á lokamínútunni þegar Steven Boothman var rekinn af velli eftir að hafa sparkaði Jordy niður. Rétt á eftir fékk Lauri Dalla Valle upplagt færi til að gera út um leikinn. Hann komst þá inn á vítateiginn en markmaður Wigan bjargaði með góðu úthlaupi. Jafntefli varð því niðurstaðan. Liverpool tapaði dýrmætum stigum en liðið getur þó enn vel unnið deildina.
Liverpool: Hansen, Kelly (Flanagan 71. mín), Mavinga, Ayala, Guðlaugur Victor, Duran (Cooper 60. mín.), Dalla Valle, Irwin, Brouwer, Plessis (Saric 68. mín.) og Kacaniklic. Ónotaðir varamenn: Oldfield, Kohlert.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Francisco Duran.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

