| Sf. Gutt
Varalið Liverpool vann góðan útisigur 1:0 á Hull í kvöld og hefur tekið stefnuna á topp deildarinnar. Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliðinu og lék allan leikinn.
John McMahon, þjálfari varaliðsins, varð að gera nokkrar breytingar á liðinu sínu. Jay Spearing fór í lán í dag og nokkra aðra fastamenn vantaði. Tveir leikmenn, John Flanagan og Alex Cooper, léku í fyrsta sinn með varaliðinu og stóðu sig mjög vel.
Liverpool fékk óskabyrjun og komst yfir á 7. mínútu. Hollendingurinn Jordy Brouwer tók þá við sendingu frá Damien Plessis hátt í 30 metra frá marki. Hann hugsaði sig ekki um og þrykkti boltanum beinustu leið í markið út við stöng. Stórglæsilegt mark hjá Jordy. Hull fékk færi tíu mínútum seinna þegar Guðlaugur missti boltann til Kamel Ghilas en hann skaut framhjá. Fátt meira gerðist í fyrri hálflik.
Hull hóf síðari hálfleikinn af krafti og strax á fyrstu mínútu átti Tom Cairney gott langskot en Peter Gulacsi var vandanum vaxinn og varði. Frekar lítið var um færi lengi vel. Mark Oxley, markmaður Hull, gerði vel í að verja frá Damien en skot hans fór í varnarmann og breytti um stefnu. Undir lokin fengu heimamenn tvö færi en allt fór vel því skot þeirra Seyi Olofinjana og Kamel hittu ekki markrammann. Liverpool hafði því sigur og hann mikilvægan.
Liverpool hefur lítið leikið í deildinni á þessu ári og nokkrum leikjum hefur verið frestað vegna veðurs. Manchester United leiðir nú deildina. Liverpool er sjö stigum á eftir United en á fjóra leiki til góða. Liðið á því góða möguleika á að vinna deildina en á móti kemur að mikið leikjaálag verður á liðinu næstu vikurnar.
Liverpool: Peter Gulacsi, John Flanagan, Alex Cooper, Daniel Ayala, Guðlaugur Victor Pálsson, Francisco Duran (Nikolaj Kohlert 59. mín.), Jordy Brouwer (Nikola Saric 73. mín.), Steven Irwin, Lauri Dalla Valle, Damien Plessis og Alex Kacaniklic (Tony Silva 85. mín.). Ónotaðir varamenn: Chris Oldfield og Michael Ihiekwe.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: John Flanagan. Þessi táningur, sem lék stöðu bakvarðar, átti athyglisverðan leik. Þetta var fyrsti leikur hans með liðinu. Francisco Duran, spilaði í 60 mínútur, og á skilið að minnst sé hans hlut.
TIL BAKA
Góður sigur hjá varaliðinu
Varalið Liverpool vann góðan útisigur 1:0 á Hull í kvöld og hefur tekið stefnuna á topp deildarinnar. Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliðinu og lék allan leikinn.John McMahon, þjálfari varaliðsins, varð að gera nokkrar breytingar á liðinu sínu. Jay Spearing fór í lán í dag og nokkra aðra fastamenn vantaði. Tveir leikmenn, John Flanagan og Alex Cooper, léku í fyrsta sinn með varaliðinu og stóðu sig mjög vel.
Liverpool fékk óskabyrjun og komst yfir á 7. mínútu. Hollendingurinn Jordy Brouwer tók þá við sendingu frá Damien Plessis hátt í 30 metra frá marki. Hann hugsaði sig ekki um og þrykkti boltanum beinustu leið í markið út við stöng. Stórglæsilegt mark hjá Jordy. Hull fékk færi tíu mínútum seinna þegar Guðlaugur missti boltann til Kamel Ghilas en hann skaut framhjá. Fátt meira gerðist í fyrri hálflik.
Hull hóf síðari hálfleikinn af krafti og strax á fyrstu mínútu átti Tom Cairney gott langskot en Peter Gulacsi var vandanum vaxinn og varði. Frekar lítið var um færi lengi vel. Mark Oxley, markmaður Hull, gerði vel í að verja frá Damien en skot hans fór í varnarmann og breytti um stefnu. Undir lokin fengu heimamenn tvö færi en allt fór vel því skot þeirra Seyi Olofinjana og Kamel hittu ekki markrammann. Liverpool hafði því sigur og hann mikilvægan.
Liverpool hefur lítið leikið í deildinni á þessu ári og nokkrum leikjum hefur verið frestað vegna veðurs. Manchester United leiðir nú deildina. Liverpool er sjö stigum á eftir United en á fjóra leiki til góða. Liðið á því góða möguleika á að vinna deildina en á móti kemur að mikið leikjaálag verður á liðinu næstu vikurnar.
Liverpool: Peter Gulacsi, John Flanagan, Alex Cooper, Daniel Ayala, Guðlaugur Victor Pálsson, Francisco Duran (Nikolaj Kohlert 59. mín.), Jordy Brouwer (Nikola Saric 73. mín.), Steven Irwin, Lauri Dalla Valle, Damien Plessis og Alex Kacaniklic (Tony Silva 85. mín.). Ónotaðir varamenn: Chris Oldfield og Michael Ihiekwe.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: John Flanagan. Þessi táningur, sem lék stöðu bakvarðar, átti athyglisverðan leik. Þetta var fyrsti leikur hans með liðinu. Francisco Duran, spilaði í 60 mínútur, og á skilið að minnst sé hans hlut.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

