| Sf. Gutt
Guðlaugur Victor Pálsson kom til Liverpool fyrir rúmu ár. Hann komst strax í varalið Liverpool. Á síðasta keppnistímabili lék hann oftast aftarlega á miðjunni og stóð hann sig vel í þeirri stöðu.
Núna hefur Guðlaugur fengið annað hlutverk. Í síðustu leikjum hefur hann leikið sem miðvörður við hliðina á Daniel Ayala. Landa okkar hefur gengið vel í þessari nýju stöðu og fengið mikið hrós fyrir að skila henni vel.
Í síðustu viku átti hann mjög góðan leik við hliðina á Daniel þegar Liverpool vann Wigan 2:0. John McMahon þjálfari varaliðsins sagði þetta um Guðlaug eftir leikinn. ,,Hann spilaði mjög vel í dag. Hann er nýbyrjaður að spila þessa stöðu og á margt eftir ólært. Ég vona að hann eigi eftir að halda áfram að bæta sig í stöðunni."
David Fairclough, fyrrum leikmaður Liverpool, fylgist jafnan með varaliðsleikjunum á sjónvarpsstöð félagsins. Hann hrósaði Guðlaugi í lýsingu á leik Liverpool og Hull núna fyrr í vikunni. Hann sagði Guðlaug vera sterkan leikmann sem hefði verið að spila vel sem varnarmaður.
Guðlaugur var ekki alltaf í byrjunarliði varaliðs Liverpool framan af þessu keppnistímabili en núna er hann orðinn fastamaður á nýjan leik og það verður fróðlegt að sjá hvernig honum vegnar til vorsins.
TIL BAKA
Guðlaugi hrósað!
Guðlaugur Victor Pálsson kom til Liverpool fyrir rúmu ár. Hann komst strax í varalið Liverpool. Á síðasta keppnistímabili lék hann oftast aftarlega á miðjunni og stóð hann sig vel í þeirri stöðu. Núna hefur Guðlaugur fengið annað hlutverk. Í síðustu leikjum hefur hann leikið sem miðvörður við hliðina á Daniel Ayala. Landa okkar hefur gengið vel í þessari nýju stöðu og fengið mikið hrós fyrir að skila henni vel.
Í síðustu viku átti hann mjög góðan leik við hliðina á Daniel þegar Liverpool vann Wigan 2:0. John McMahon þjálfari varaliðsins sagði þetta um Guðlaug eftir leikinn. ,,Hann spilaði mjög vel í dag. Hann er nýbyrjaður að spila þessa stöðu og á margt eftir ólært. Ég vona að hann eigi eftir að halda áfram að bæta sig í stöðunni."
David Fairclough, fyrrum leikmaður Liverpool, fylgist jafnan með varaliðsleikjunum á sjónvarpsstöð félagsins. Hann hrósaði Guðlaugi í lýsingu á leik Liverpool og Hull núna fyrr í vikunni. Hann sagði Guðlaug vera sterkan leikmann sem hefði verið að spila vel sem varnarmaður.
Guðlaugur var ekki alltaf í byrjunarliði varaliðs Liverpool framan af þessu keppnistímabili en núna er hann orðinn fastamaður á nýjan leik og það verður fróðlegt að sjá hvernig honum vegnar til vorsins.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

