| Sf. Gutt

Allt það helsta um Neil Ruddock



Árshátíð Liverpool klúbbsins á Íslandi fyrir árið 2010 fer fram í kvöld. Heiðursgestur hátíðarinnar í ár er Neil Ruddock. Hér er allt það helsta um hann.
 
Nafn: Neil Ruddock.

Fæðingardagur: 9. maí 1968.
 
Fæðingarstaður: Wandsworth í London á Englandi.

Félög: Millwall (1986) , Tottenham Hotspur (1986 til 1988), Millwall (1988 til 1989), Southampton (1989 til 1992), Tottenham Hotspur (1992 til 1993), Liverpool (1993 til 1998),  Queens Park Rangers, lánsmaður, (1998), West Ham United (1998 til 2000), Crystal Palace (2000 til 2001) og Swindon Town (2001 til 2003).

Leikir með Liverpool: 152.

Mörk með Liverpool: 12.
 
Titill með Liverpool:
Deildarbikarmeistari: 1995.

Landsleikur með Englandi: 1.

B landsleikur með Englandi: 1.

Undir 21. árs landsleikir: 4.

                                                                             Fróðleikur...

- Neil hafði jafnan gælunafnið Razor. Það var komið frá hnefaleikaranum Donovan Ruddock en hann hafði það gælunafn.

- Neil var í tvígang á mála hjá bæði Millwall og Tottenham Hotspur.

- Þessi tvö lið voru uppáhaldslið hans þegar hann var lítill.

- Neil lék einn B landsleik. Hann leiddi þá enska liðið sem fyrirliði gegn Írlandi. Leikurinn fór fram á Anfield.
 
- Hjátrú hans sem leikmanns fólst í að fara fyrst í hægri sokk og skó en hann var örvfættur! Hann vildi svo alltaf hlaupa út á eftir leikmanni númer 10.

- Neil lauk ferli sínum hjá Swindon Town. Roy Evans, fyrrum stjóri hans hjá Liverpool, fékk hann til félagsins og var Neil bæði leikmaður og þjálfari.   

- Neil hefur vakið athygli á seinni árum fyrir þátttöku í raunveruleikasjónvarpsþáttum á Bretlandi.
 
                                                   Með eigin orðum þegar hann var hjá Liverpool...

,,Ég vona að mín verði minnst sem leikmanns sem sýndi að hann var góður í knattspyrnu. Ég kom til félagsins með slæmt orðspor en ég vona að ég hafi bætt það orð sem af mér fer og sýnt að ég geti spilað knattspyrnu."  












TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan