| HI

Ruddock í Jóa útherja í dag

Hinn eitilharði fyrrum varnarjaxl Liverpool, Neil Ruddock, verður staddur hér á landi um helgina. Stuðningsmenn Liverpool eiga þess kost að berja kappann augum í dag, laugardag frá klukkan 11-12, en þá verður hann í versluninni Jói útherji í Ármúlanum í Reykjavík.

Við hvetjum meðlimi klúbbsins til að mæta á svæðið og hitta á kappann, því svona tækifæri gefast ekki á hverjum degi.

Að sjálfsögðu verður verslunin opin og hægt verður að kaupa sér ýmsan Liverpool varning í leiðinni og hver veit nema hann fáist áritaður líka.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan