| Sf. Gutt
Í annað sinn á einni viku tryggði Liverpool sér sæti í úrslitaleik. Í dag komst liðið í úrslitaleik Lancashire bikarkeppninnar. Þessi keppni heitir Lancashire Senior Cup á frummálinu. Liverpool lagði Wigan Athletic 2:0 að velli í undanúrslitum í dag. Liverpool hefur nokkrum sinnum unnið þessa keppni en nokkuð er um liðið frá því það gerðist síðast.
John McMahon, þjálfari varaliðsins, tefldi fram fjórum leikmönnum sem hafa spilað með aðalliðinu og því var lið Liverpool töluvert sterkt. Heimamenn voru líka með sterkt lið og voru sterkari til að byrja með. Lauri Dalla Valle fékk fyrsta færi Liverpool á upphafskafla leiksins en Vladimir Stojkovic varði vel frá honum. Wigan fékk svo tvö góð færi en náði ekki að skora. Rétt áður en flautað var til hálfleiks fékk Daniel Pacheco upplagt færi en hann skaut framhjá. Daniel var aftur kominn til Liverpool eftir að hafa verið við æfingar með spænska unglingaliðinu.
Í síðari hálfleik náði Liverpool að gera út um leikinn. Eftir rétt rúmlega klukkutíma kom finnski markahrókurinn Lauri Dalla Valle Liverpool yfir þegar hann skoraði með skalla eftir hornspyrnu. Wigan reyndi að jafna en vörn Liverpool, með þá Daniel Ayala og Guðlaug Victor Pálsson sem bestu menn, hélt. Liverpool gulltryggði svo sigurinn tveimur mínútum fyrir leikslok þegar Daniel Pacheco skoraði. Hann fékk boltann utan við vítateiginn vinstra megin og lék inn í teiginn þaðan sem hann skoraði með skoti neðst í nærhornið. Góður sigur og úrslitasæti komið í höfn!!!
Liverpool: Peter Gulacsi, Emmanuel Mendy (Jordy Brouwer 34. mín.), Steven Irwin, Daniel Ayala, Guðlaugur Victor Pálsson, Jay Spearing (Nikolaj Kohlert 90. mín.), Daniel Pacheco, David Amoo, Lauri Dalla Valle (Nikola Saric 83. mín.), Damien Plessis og Alex Kacaniklic. Ónotaðir varamenn: Martin Hansen og Francisco Duran.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Daniel Ayala. Hann var mjög sterkur í vörninni og tapaði ekki skallaeinvígi. Það má líka nefna Victor Pálsson sem lék vel við hliðina á Ayala í vörninni.
Liverpool getur nú unnið þrjá titla á þessu keppnistímabili. Liðið er í toppbaráttu í varaliðsdeildinni og hefur nú komist, á einni viku, í úrslit í tveimur bikarkeppnum. Fyrst Liverpool Senior Cup og nú Lacashire Senior Cup. Vonandi tekst að vinna alla þessa titla!
TIL BAKA
Liverpool aftur í úrslit!
Í annað sinn á einni viku tryggði Liverpool sér sæti í úrslitaleik. Í dag komst liðið í úrslitaleik Lancashire bikarkeppninnar. Þessi keppni heitir Lancashire Senior Cup á frummálinu. Liverpool lagði Wigan Athletic 2:0 að velli í undanúrslitum í dag. Liverpool hefur nokkrum sinnum unnið þessa keppni en nokkuð er um liðið frá því það gerðist síðast. John McMahon, þjálfari varaliðsins, tefldi fram fjórum leikmönnum sem hafa spilað með aðalliðinu og því var lið Liverpool töluvert sterkt. Heimamenn voru líka með sterkt lið og voru sterkari til að byrja með. Lauri Dalla Valle fékk fyrsta færi Liverpool á upphafskafla leiksins en Vladimir Stojkovic varði vel frá honum. Wigan fékk svo tvö góð færi en náði ekki að skora. Rétt áður en flautað var til hálfleiks fékk Daniel Pacheco upplagt færi en hann skaut framhjá. Daniel var aftur kominn til Liverpool eftir að hafa verið við æfingar með spænska unglingaliðinu.
Í síðari hálfleik náði Liverpool að gera út um leikinn. Eftir rétt rúmlega klukkutíma kom finnski markahrókurinn Lauri Dalla Valle Liverpool yfir þegar hann skoraði með skalla eftir hornspyrnu. Wigan reyndi að jafna en vörn Liverpool, með þá Daniel Ayala og Guðlaug Victor Pálsson sem bestu menn, hélt. Liverpool gulltryggði svo sigurinn tveimur mínútum fyrir leikslok þegar Daniel Pacheco skoraði. Hann fékk boltann utan við vítateiginn vinstra megin og lék inn í teiginn þaðan sem hann skoraði með skoti neðst í nærhornið. Góður sigur og úrslitasæti komið í höfn!!!
Liverpool: Peter Gulacsi, Emmanuel Mendy (Jordy Brouwer 34. mín.), Steven Irwin, Daniel Ayala, Guðlaugur Victor Pálsson, Jay Spearing (Nikolaj Kohlert 90. mín.), Daniel Pacheco, David Amoo, Lauri Dalla Valle (Nikola Saric 83. mín.), Damien Plessis og Alex Kacaniklic. Ónotaðir varamenn: Martin Hansen og Francisco Duran.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Daniel Ayala. Hann var mjög sterkur í vörninni og tapaði ekki skallaeinvígi. Það má líka nefna Victor Pálsson sem lék vel við hliðina á Ayala í vörninni.
Liverpool getur nú unnið þrjá titla á þessu keppnistímabili. Liðið er í toppbaráttu í varaliðsdeildinni og hefur nú komist, á einni viku, í úrslit í tveimur bikarkeppnum. Fyrst Liverpool Senior Cup og nú Lacashire Senior Cup. Vonandi tekst að vinna alla þessa titla!
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

