| Sf. Gutt
Fernando Torres vill rótækar breytingar! Hann vill að sterkari leikmenn verði keyptir til Liverpool svo að liðið geti verið með í baráttu um titla á næsta keppnistímabili! Hann sagði þetta í athyglisverðu viðtali við spæanska blaðið AS.
"Það er of snemmt að segja til um það en ég held að við eigum eftir að ná fjórða sætinu en það skiptir ekki öllu fyrir mig að komast í Meistaradeildina. Það sem mestu skiptir er að félagið geri allt sem hægt er til að fá betri leikmenn til að styrka liðshópinn. Við þurfum fjóra eða fimm leikmenn í hæsta gæðaflokki til að styrkja hópinn. Þetta þurfa að vera leikmenn sem eru betri en þeir sem eru hérna núna. Svona menn myndu skapa samkeppni í leikmannahópnum þannig að við, sem fyrir erum, gerðum allt sem við gætum til að halda stöðum okkar."
"Ef það næst ekki að styrka liðið þá verðum við aftur í baráttu um fjórða sætið á næsta ári. Ég vil vera með í baráttu um að vinna Úrvalsdeildina, Meistaradeildina eða Evrópudeildina. En til að þetta geti gerst þá verður að kaupa leikmenn."
Fernando Torres hefur oft dásamað Liverpool og sagt að félagið sé það rétta fyrir hann. Honum líður vel í Liverpool og vill vera áfram þar. En hroðalegt gengi liðsins á þessari leiktíð gæti hugsanlega valdið því að hann vilji söðla um.
"Þetta er allt saman flókið og það þarf að taka margt með í reikninginn. Það er því alltof snemmt að tala um þau mál en ég á þetta ár og svo þrjú önnur eftir af samningi mínum hérna. Ég yfirgaf heimahaga mína og ég veit að ég á Liverpool mikið að þakka. Ég er mjög ánægður hérna. Stuðningsmennirnir hafa tekið mér eins og einum úr sínum hópi. Ég verð þó að íhuga framtíð mína en ég vona að ég verði hérna áfram."
Fernando Torres hefur myndað náið samband við stuðningsmenn Liverpool frá því hann fluttist til Englands. Hann hefur oft talað um hversu vel þeir hafa reynst honum og hann vonar að þeir eigi eftir að gleðjast yfir góðu gengi liðsins.
"Stuðningsmennirnir eiga það skilið að liðið þeirra sé sigursælt. Það snýst ekki allt um mig hérna og mér finnst að félagið eigi skilið að því gangi vel en stuðningsmennirnir vita að liðið á langt í land með að hafa burði í að geta barist um titla. Stuðningsmennirnir hafa áhyggjur af því að leikmenn muni yfirgefa félagið og það er slæmt þegar maður fer að óttast að leikmenn séu hugsanlega á förum vegna þess að liðinu gengur ekki vel. Ég hef þó ekki áhyggjur að það gerist hér. Eftir að Christian Purslow kom til starfa hérna hefur mikið gerst og Liverpool gerði gríðarlega stóran styrktarsamning sem jafnast á við þá samninga sem Real Madrid hefur gert. Mál mun því þróast í rétta átt."
TIL BAKA
Fernando Torres vill betri leikmenn!
Fernando Torres vill rótækar breytingar! Hann vill að sterkari leikmenn verði keyptir til Liverpool svo að liðið geti verið með í baráttu um titla á næsta keppnistímabili! Hann sagði þetta í athyglisverðu viðtali við spæanska blaðið AS."Það er of snemmt að segja til um það en ég held að við eigum eftir að ná fjórða sætinu en það skiptir ekki öllu fyrir mig að komast í Meistaradeildina. Það sem mestu skiptir er að félagið geri allt sem hægt er til að fá betri leikmenn til að styrka liðshópinn. Við þurfum fjóra eða fimm leikmenn í hæsta gæðaflokki til að styrkja hópinn. Þetta þurfa að vera leikmenn sem eru betri en þeir sem eru hérna núna. Svona menn myndu skapa samkeppni í leikmannahópnum þannig að við, sem fyrir erum, gerðum allt sem við gætum til að halda stöðum okkar."
"Ef það næst ekki að styrka liðið þá verðum við aftur í baráttu um fjórða sætið á næsta ári. Ég vil vera með í baráttu um að vinna Úrvalsdeildina, Meistaradeildina eða Evrópudeildina. En til að þetta geti gerst þá verður að kaupa leikmenn."
Fernando Torres hefur oft dásamað Liverpool og sagt að félagið sé það rétta fyrir hann. Honum líður vel í Liverpool og vill vera áfram þar. En hroðalegt gengi liðsins á þessari leiktíð gæti hugsanlega valdið því að hann vilji söðla um.

"Þetta er allt saman flókið og það þarf að taka margt með í reikninginn. Það er því alltof snemmt að tala um þau mál en ég á þetta ár og svo þrjú önnur eftir af samningi mínum hérna. Ég yfirgaf heimahaga mína og ég veit að ég á Liverpool mikið að þakka. Ég er mjög ánægður hérna. Stuðningsmennirnir hafa tekið mér eins og einum úr sínum hópi. Ég verð þó að íhuga framtíð mína en ég vona að ég verði hérna áfram."
Fernando Torres hefur myndað náið samband við stuðningsmenn Liverpool frá því hann fluttist til Englands. Hann hefur oft talað um hversu vel þeir hafa reynst honum og hann vonar að þeir eigi eftir að gleðjast yfir góðu gengi liðsins.
"Stuðningsmennirnir eiga það skilið að liðið þeirra sé sigursælt. Það snýst ekki allt um mig hérna og mér finnst að félagið eigi skilið að því gangi vel en stuðningsmennirnir vita að liðið á langt í land með að hafa burði í að geta barist um titla. Stuðningsmennirnir hafa áhyggjur af því að leikmenn muni yfirgefa félagið og það er slæmt þegar maður fer að óttast að leikmenn séu hugsanlega á förum vegna þess að liðinu gengur ekki vel. Ég hef þó ekki áhyggjur að það gerist hér. Eftir að Christian Purslow kom til starfa hérna hefur mikið gerst og Liverpool gerði gríðarlega stóran styrktarsamning sem jafnast á við þá samninga sem Real Madrid hefur gert. Mál mun því þróast í rétta átt."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

