
Barnaárshátíð Liverpoolklkúbbsins á Íslandi hefur fyrir löngu síðan skapað sér góðan sess í starfi klúbbsins. Í ár fer hún fram sunnudaginn 14. mars nk. á milli klukkan 13:00 og 15:00. Eins og síðustu ár verður hún haldin í íþróttahúsi Árbæjarskóla. Húsfyllir var á síðasta ári og er ætlunin að fylla húsið aftur í ár af skemmtilegum krökkum á öllum aldri. Við hvetjum stuðningsmenn Liverpool FC á Íslandi til að mæta á svæðið með börnin og gera sér glaðan dag.
Hvenær:
14. mars
Klukkan hvað:
13-15
Hvar:
Íþróttahúsi Árbæjarskóla
Dagskrá:
Leikir og þrautir undir leiðsögn íþróttaþjálfara
Happdrætti - Öll börn fá vinninga
Pizzuveisla
Liverpool leikir og mörk á breiðtjaldi fyrir fullorðnu stuðningsmennina á meðan
Verð:
Ókeypis
Nú er bara að taka daginn frá og mæta svo á svæðið og leyfa krökkunum að njóta sín.