| Sf. Gutt

Ungliði lánaður

Varnarmaðurinn ungi Robbie Threlfall hefur verið lánaður frá Liverpool. Þetta er í þriðja sinn sem hann er sendur í lán. Hann verður hjá Bradford City þar til 22. mars. Bradford er í þriðju deild ef atvinnumannadeildirnar fjórar eru taldar.

Robbie hefur áður verið í láni hjá Hereford United og Northampton Town. Hann hefur því aflað sér nokkurrar leikreynslu meðal atvinnumanna á þessum lánsferðum sínum.

Robbie hefur lengi þótt efnilegur varnarmaður og var í liðshópi þeim er Liverpool tilkynnti fyrir Evrópudeildina nú fyrr í mánuðinum. Hann hefur enn ekki leikið keppnisleik með aðalliðinu.






TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan