| Grétar Magnússon
Kristján Gauti Emilsson fer heldur betur vel af stað með U-18 ára liði Liverpool. Hann skoraði eina mark leiksins í sínum fyrsta leik gegn Manchester United á dögunum og nú skoraði hann gegn hinu liðinu í Manchester í 2-1 sigri.
Kristján Gauti kom inná sem varamaður í leiknum og má með sanni segja að innkomur hans hafa verið gulls ígildi fyrir unglingaliðið, Stephen Sama skoraði hitt mark liðsins. Náði U-18 ára liðið sér þar með á strik eftir tapið gegn Watford í bikarkeppninni.
Í september mættust liðin í Kirkby og þá lauk leiknum með 6-2 sigri Manchester City, sigurinn í dag hlýtur því að teljast vera nokkuð góður.
Lið Liverpool var þannig skipað: Chris Oldfield, John Flanagan, Jack Robinson, Andre Wisdom, Stephen Sama, Conor Coady, Michael Ngoo, Michael Roberts, Lauri Dalla Valle, Krisztian Adorjan, Tom Ince. Varamenn: Kristjan Gauti Emilsson, Craig Roddan, Alex Cooper, Matty McGiveron.
Það er vonandi að þessi sigur Liverpool sé forsmekkur fyrir stórleik þessara sömu liða í Manchester á morgun. Ungliðarnir hafa að minnsta kosti gefið tóninn.
TIL BAKA
Kristján Gauti skoraði aftur
Kristján Gauti Emilsson fer heldur betur vel af stað með U-18 ára liði Liverpool. Hann skoraði eina mark leiksins í sínum fyrsta leik gegn Manchester United á dögunum og nú skoraði hann gegn hinu liðinu í Manchester í 2-1 sigri.Kristján Gauti kom inná sem varamaður í leiknum og má með sanni segja að innkomur hans hafa verið gulls ígildi fyrir unglingaliðið, Stephen Sama skoraði hitt mark liðsins. Náði U-18 ára liðið sér þar með á strik eftir tapið gegn Watford í bikarkeppninni.
Í september mættust liðin í Kirkby og þá lauk leiknum með 6-2 sigri Manchester City, sigurinn í dag hlýtur því að teljast vera nokkuð góður.
Lið Liverpool var þannig skipað: Chris Oldfield, John Flanagan, Jack Robinson, Andre Wisdom, Stephen Sama, Conor Coady, Michael Ngoo, Michael Roberts, Lauri Dalla Valle, Krisztian Adorjan, Tom Ince. Varamenn: Kristjan Gauti Emilsson, Craig Roddan, Alex Cooper, Matty McGiveron.
Það er vonandi að þessi sigur Liverpool sé forsmekkur fyrir stórleik þessara sömu liða í Manchester á morgun. Ungliðarnir hafa að minnsta kosti gefið tóninn.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

