| Sf. Gutt
Þá er enn einu sinni komið að algjörum stórleik sem verður að vinnast og má ekki tapast. Líklega telja sparkspekingar þetta sex stiga leik. Það eru þó bara þrjú stig í boði fyrir sigur í þessum leik eins og öllum öðrum.
Ekki skal þó dregið úr mikilvægi leiksins enda eru þessi lið að berjast um fjórða sæti deildarinnar sem veitir aðgang að Meistaradeildinni á næsta keppnistímabili nema þá hin ótrúlega tillaga um umspil nái fram að ganga. Sú tillaga er reyndar alveg út í hött að flestra áliti enda snýst hún bara um að græða peninga eða hvað? Til hvers er verið að spila upp á deildarsæti ef þau skipta svo ekki öllu máli þegar upp er staðið? Spyr sá sem ekki veit.
Fróðleiksmolar...
- Liverpool tapaði síðasta deildarleik eftir að hafa leikið sjö leiki í röð án taps.
- Manchester City hefur ekki tapað á heimavelli frá því í apríl á síðasta ári.
- Liðið hefur unnið sex síðustu heimaleiki sína.
- Liverpool hefur ekki tapað síðustu níu leikjum sínum gegn City.
- Liverpool hefur ekki skorað þrjú mörk í sama deildarleiknum frá því í september.
- Þeir Jose Reina, Lucas Leiva og Dirk Kuyt hafa spilað alla deildarleiki Liverpool á þessari leiktíð.
- Fernando Torres hefur skorað flest mörk Liverpool á keppnistímabilinu eða tólf talsins.
Rafa Benitez mun trúlega stilla upp átta mönnum í vörn frekar en fjórum. Brottfall úr Meistaradeildinni og meiðsli lykilmanna hafa valdið því að hann hefur þétt liðið þannig að það er erfitt að leggja það að velli. Þetta hefur skilað sér í hagstæðum úrslitum. City er sterkt á heimavelli. Bæði lið vilja auðvitað vinna þennan leik og mér finnst oft þegar bæði liði ætla sér sigur að hvorugt nái honum og jafntefli verði niðurstaðan.
Úrskurður: Manchester City v Liverpool 2:2.
TIL BAKA
Mark spáir í spilin
Þá er enn einu sinni komið að algjörum stórleik sem verður að vinnast og má ekki tapast. Líklega telja sparkspekingar þetta sex stiga leik. Það eru þó bara þrjú stig í boði fyrir sigur í þessum leik eins og öllum öðrum. Ekki skal þó dregið úr mikilvægi leiksins enda eru þessi lið að berjast um fjórða sæti deildarinnar sem veitir aðgang að Meistaradeildinni á næsta keppnistímabili nema þá hin ótrúlega tillaga um umspil nái fram að ganga. Sú tillaga er reyndar alveg út í hött að flestra áliti enda snýst hún bara um að græða peninga eða hvað? Til hvers er verið að spila upp á deildarsæti ef þau skipta svo ekki öllu máli þegar upp er staðið? Spyr sá sem ekki veit.
Fróðleiksmolar...
- Liverpool tapaði síðasta deildarleik eftir að hafa leikið sjö leiki í röð án taps.
- Manchester City hefur ekki tapað á heimavelli frá því í apríl á síðasta ári.
- Liðið hefur unnið sex síðustu heimaleiki sína.
- Liverpool hefur ekki tapað síðustu níu leikjum sínum gegn City.
- Liverpool hefur ekki skorað þrjú mörk í sama deildarleiknum frá því í september.
- Þeir Jose Reina, Lucas Leiva og Dirk Kuyt hafa spilað alla deildarleiki Liverpool á þessari leiktíð.
- Fernando Torres hefur skorað flest mörk Liverpool á keppnistímabilinu eða tólf talsins.

Spá Mark Lawrenson
Manchester City v Liverpool
Manchester City v Liverpool
Rafa Benitez mun trúlega stilla upp átta mönnum í vörn frekar en fjórum. Brottfall úr Meistaradeildinni og meiðsli lykilmanna hafa valdið því að hann hefur þétt liðið þannig að það er erfitt að leggja það að velli. Þetta hefur skilað sér í hagstæðum úrslitum. City er sterkt á heimavelli. Bæði lið vilja auðvitað vinna þennan leik og mér finnst oft þegar bæði liði ætla sér sigur að hvorugt nái honum og jafntefli verði niðurstaðan.
Úrskurður: Manchester City v Liverpool 2:2.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

