| Ólafur Haukur Tómasson

Johnson: Kop er í sér klassa!

Glen Johnson sem er lang dýrasti varnarmaður í sögu félagsins er hann var keyptur frá Portsmouth síðastliðið sumar fyrir rúmar sautján milljónir punda, Andrea Dossena er næst dýrasti varnarmaðurinn í sögunni en hann var keyptur á sjö milljónir punda. Glen gengur í hóp fjölmarga leikmanna sem hrósa stuðningsmönnum liðsins.

"Stuðningsmennirnir er frábærir. Fólk talar oft um hve góðir stuðningsmenn Portsmouth eru, sem þeir eru, en stuðningsmenn Liverpool eru í sérklassa. Þegar maður gengur inn á Anfield og maður heyrir stuðningsmennina syngja, það hjálpar manni. Allir leikmennirnir eru svo stoltir af því að klæðast þessari treyju." sagði Glen.

Hann lenti í slæmum hnémeiðslum í lok desember og vonast hann til þess að geta snúið aftur til æfinga í næsta mánuði. Bakvörðurinn öflugi á tvær óskir fyrir það sem eftir líður tímabilsins.

"Hvað varðar Liverpool þá vona ég að við vinnum alla leikina sem eftir eru á leiktíðinni. Hvað mig varðar þá verð ég að koma hnénu í lag, koma því í það stand sem það var í og reyna að komast aftur í liðið. Vonandi getum við náð öllum markmiðunum, endað í einu af fjórum efstu sætunum og verið ánægðir."

Glen hefur spilað 21 leik á leiktíðinni og skorað tvö mörk síðan hann kom til liðsins í sumar.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan