| Heimir Eyvindarson
TIL BAKA
Arkitektinn Insua
Emilio Insua hefur gefið sex stoðsendingar á tímabilinu, en aðeins Steven Gerrard getur státað af fleiri. Það má því með sanni segja að hann sé einn af helstu arkitektum liðsins.

Hinn 21 árs gamli vinstri bakvörður hefur leikið 33 leiki fyrir Liverpool á tímabilinu og átt í þeim samtals sex stoðsendingar, auk þess að skora sjálfur eitt mark.
Argentínumaðurinn ungi virðist vera búinn að festa sig í sessi sem vinstri bakvörður númer eitt hjá liðinu og hann segist ánægður með lífið hjá Liverpool.
,,Það eru forréttindi fyrir mig að spila með reyndum og góðum leikmönnum eins og Reina, Carragher, Kyrgiakos, Skrtel og Agger. Þeir hjálpa mér mjög mikið í leikjunum og eru duglegir að láta í sér heyra inni á vellinum."
,,Það er mikilvægt að hlusta á það sem þeir hafa að segja og það er líka afar gott fyrir mig að finna hve vel þeir treysta mér. Það er gott fyrir sjálfstraustið."
,,Rafael Benítez hefur líka sýnt mér mikið traust og það er ekki síður ánægjulegt. Þetta tímabil hefur gengið nokkuð vel hjá mér og ég hef fengið að spila mikið, sem er alltaf gott."
Eins og fjöldi stoðsendinga gefur til kynna tekur Insua jafnan virkan þátt í sóknarleik Liverpool liðsins.
,,Sem varnarmaður þarf maður auðvitað fyrst og fremst að hugsa um að verjast, en þegar ég fæ tækifæri til þá tæti ég upp kantinn."
,,Ég reyni að setja boltann á réttan stað þegar ég gef fyrir. Stundum heppnast það, stundum ekki. Ég er enn að reyna að bæta fyrirgjafirnar. Ég æfi þær á hverri einustu æfingu því ég vil verða betri og betri. Vonandi skilar það sér í betri árangri fyrir liðið."
Insua er sannfærður um að Liverpool muni enda meðal fjögurra efstu liða í vor, þrátt fyrir skrykkjótt gengi í vetur.
,,Ég held að við munum enda meðal fjögurra efstu, en við verðum að leggja hart að okkur til að ná því marki. Manchester City, er t.d. jafnt okkur í fjórða sætinu sem stendur en þeir eiga 2 leiki til góða þannig að það getur allt gerst. Mér finnst við vera á réttri leið og vonandi tekst okkur að tryggja okkur sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili."

Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan