| Sf. Gutt

Hápunktur ársins 2009 - Númer 3

Á dögunum könnuðum við hvaða atburður nýliðins árs lesendum Liverpool.is þótti merkilegastur. Við förum nú yfir niðurstöðurnar. Þetta var talinn þriðji markverðasti atburðurinn sem reyndar voru tveir! 

Liverpool í efsta sæti deildarinnar í byrjun árs - 11%
 Steven Gerrard kosinn Knattspyrnumaður ársins - 11%
 


Liverpool leiddi úrvalsdeildina í byrjun nýliðins árs en það tókst ekki að halda þeirri forystu til vors en liðið okkar gerði þó harða atlögu að enska meistaratitlinum. Annað sætið varð hlutskipti Liverpool en við stuðningsmenn liðsins glöddumst mjög á meðan liðið okkar trónaði á toppnum.

Steven Gerrard var frábær á síðasta keppnistímabili. Hann setti persónulegt markamet með því að smella boltanum 24 sinnum í mark andstæðinga sinna og átti auk þess þátt í mörgum mörkum félaga sinna. Hann hlaut þann verkskuldaða heiður að vera kjörinn Knattspyrnumaður ársins 2009 í vali íþróttafréttamanna. Steven varð þar með fyrsti leikmaður Liverpool til að hljóta þá nafnbót frá því John Barnes varð fyrir valinu árið 1990.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan