| Ólafur Haukur Tómasson

Rafa óánægður með ummæli Steve Bruce

Mikil umræða hefur verið á fréttamiðlum í Englandi undanfarna daga um áhuga Liverpool á framherjanum Kenwyne Jones sem er á mála hjá Sunderland. Talað var um hugsanlegan lánssamning sem myndi gilda út leiktíðina svo breyttist umræðan í að Liverpool þyrfti að borga 10 milljónir punda fyrir hann og loks kom Steve Bruce knattspyrnustjóri fram í fjölmiðla þar sem hann var ósáttur með aðferð Liverpool í málinu. Hann sagði meðal annars að ákvörðun Liverpool að leka fréttunum í fjölmiðla skammarleg.

Rafael Benítez er óánægður með ummæli Bruce og vildi ekkert fara út í umræður um Bruce en sagði þó að verið væri að vinna í málinu.

"Ég tók ekki þátt í þessu. Christian Purslow var að ræða við Niall Quinn [framkvæmdarstjóra Sunderland]. Þeir eru að vinna í stöðunni. Ég vil ekki tala mikið um þetta vegna þess að við sköpum þá einhverjar rökræður svo Christian og Niall ræða það sem þeir þurfa að ræða ef þeir þurfa þess enn. Þeir voru í viðræðum en ég veit ekki hvernig staðan er í augnalikinu." sagði Rafael Benítez.

Benítez vildi ekki staðfesta áhuga Liverpool á serbneska framherjanum Milan Jovanovic: "Þegar það er talað um leikmenn sem eru undir smásjá okkar þá er það mjög vítt því þar eru um hundrað leikmenn út um allan heim. Þeir eru nefndir en við tölum ekki um leikmennina. Allt sem ég get sagt ykkur er að hann [Jovanovic] er góður leikmaður."

Það virðist miðað við ummæli Benítez að hann hafi áhuga á að fá Kenwyne Jones í sínar raðir en óvíst er hvernig það mál muni enda.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan