| Ólafur Haukur Tómasson

Liverpool hyggst fá tvo framherja í sumar

Tony Barrett sem er mikils metinn blaðamaður og var áður á vegum Liverpool Echo en er nú hjá The Times og er hann gjarnan sagður hafa heimildarmenn innan herbúða Liverpool greinir frá því að Liverpool hafi áhuga á því að fá til sín tvo sóknarmenn í sumar. Leikmennirnir sem um ræðir eru þeir Milan Jovanovic og Marouane Chamakh en báðir verða þeir samningslausir í lok leiktíðar og hafa báðir í hyggju á að halda á önnur mið.

Jovanovic er serbneskur landsliðsmaður og er á mála hjá belgíska liðinu Standard Liege. Hann er búinn að skora tíu mörk í sautján leikjum fyrir Belgana á leiktíðinni en hann var valinn besti leikmaður belgísku deildarinnar á síðustu leiktíð. Þá skoraði hann tólf mörk í þrjátíu leikjum. Hann getur leikið í framlínunni og á vinstri kantinum. Liverpool er sagt hafa boðið honum þriggja ára samning með möguleika á fjórða árinu en samningurinn tæki gildi þegar samningur hans við Standard Liege rennur út í sumar.

Mörg lið eru á höttunum eftir Jovanovic en er Liverpool talið líklegur áfangastaður fyrir Serbann, þó aðeins ef að Liverpool tekst að sannfæra hann um að Rafael Benítez muni ekki vera vikið úr starfi. Margir góðir leikmenn eru í þeim stöðum hjá Liverpool sem hann getur spilað í og gerir hann sér því alveg grein fyrir baráttunni sem hann mun eiga en er engu að síður áhugasamur á að ganga til liðs við Liverpool nái félagið að sannfæra hann um stöðu stjórans.

Meðal þeirra liða sem hafa áhuga á Jovanovic eru Atletico Madrid, Valencia, AC Milan og Birmingham. Sagt er að Birmingham sé reiðubúið að greiða níu milljónir fyrir leikmanninn til að hann komi í janúar glugganum en talið er að Liverpool gæti haft vinningin yfir Birmingham sem gæti líklega boðið honum hærri laun og fasta stöðu í liðinu. Líklegt er að svar fáist frá Jovanovic fyrr en síðar.

Annar leikmaður sem er sagður vera með tilboð á borðinu frá Liverpool er Marokkóinn Maraoune Chamakh, framherji Bordeaux í Frakklandi. Hann verður samningslaus í lok leiktíðarinnar líkt og Jovanovic. Sagt er að forráðamenn Liverpool hafi verið í viðræðum við umboðsmann Chamakh fyrir nokkrum dögum síðan og nú er aðeins beðið eftir svari frá Chamakh sem talið er að komi fyrir mánaðarlok.

Takist Liverpool að næla í þessa tvo leikmenn á frjálsri sölu fyrir næstu leiktíð þá er klárt mál að koma þeirra muni styrkja sóknarlínu Liverpool til muna og að fá þessa tvo öflugu leikmenn á frjálsri sölu gætu orðið hin fínustu kaup.

Dominic King, blaðamaður Liverpool Echo hefur tekið undir þessar fregnir en þessir tveir blaðamenn eru ekki þekktir fyrir að gefa frá sér einhverjar bull fréttir tengdar Liverpool F.C. svo það er bara að bíða og sjá hvort að þessar fregnir hafi eitthvað við að styðjast.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan