| Grétar Magnússon
Margir bíða eftir fréttum af þeim Steven Gerrard og Fernando Torres en báðir meiddust gegn Reading þann 13. janúar.
Í fyrstu var talið að Gerrard yrði frá í tvær vikur eftir að hann tognaði í nára. Endurhæfing hans hefur hinsvegar gengið mjög vel og er hann jafnvel talið að hann geti byrjað æfingar að fullu nú um helgina, sem er nokkuð á undan áætlun. Benítez og læknaliðið mun þó fylgjast með honum og mun hann ekki verða látinn byrja æfa of fljótt.
Næsti leikur er á þriðjudaginn gegn Úlfunum úti og næsta víst er að Gerrard mun ekki taka þátt í þeim leik. Næsti leikur þar á eftir er heimaleikur gegn Bolton laugardaginn 30. janúar og þar gæti Gerrard allt eins verið klár í slaginn.
Benítez færði einnig fréttir af því að endurhæfing Torres gengi vel eftir að hann gekkst undir aðgerð á hné í Barcelona á Spáni fyrir tæpri viku síðan. Meiðsli hafa heldur betur sett strik í reikninginn hjá Torres á tímabilinu og í nóvember var jafnvel talið að hann þyrfti að gangast undir aðgerð vegna meiðsla í nára.
Margir undruðust því af hverju ekki var ákveðið að gera tvær aðgerðir á Torres í einu en Benítez greindi frá því að einfaldlega hefði ekki verið þörf á því að gera neitt varðandi nárameiðslin. Sú vinna sem Torres lagði á sig á æfingasvæðinu dag hvern gerði það að verkum að hann náði sér góðum af meiðslunum.
,,Vandamálið var í hnénu á honum og núna er allt í lagi," sagði Benítez. ,,Fernando ræddi við lækninn og staðan var betri en þeir bjuggust við. Hann verður ennþá frá í fimm til sex vikur en allt lítur vel út. Hvers vegna fór hann ekki í aðgerð á nára ? Einfaldlega vegna þess að læknirinn sagði að ekki væri þörf á því."
TIL BAKA
Fréttir af Gerrard og Torres
Margir bíða eftir fréttum af þeim Steven Gerrard og Fernando Torres en báðir meiddust gegn Reading þann 13. janúar. Í fyrstu var talið að Gerrard yrði frá í tvær vikur eftir að hann tognaði í nára. Endurhæfing hans hefur hinsvegar gengið mjög vel og er hann jafnvel talið að hann geti byrjað æfingar að fullu nú um helgina, sem er nokkuð á undan áætlun. Benítez og læknaliðið mun þó fylgjast með honum og mun hann ekki verða látinn byrja æfa of fljótt.
Næsti leikur er á þriðjudaginn gegn Úlfunum úti og næsta víst er að Gerrard mun ekki taka þátt í þeim leik. Næsti leikur þar á eftir er heimaleikur gegn Bolton laugardaginn 30. janúar og þar gæti Gerrard allt eins verið klár í slaginn.
Benítez færði einnig fréttir af því að endurhæfing Torres gengi vel eftir að hann gekkst undir aðgerð á hné í Barcelona á Spáni fyrir tæpri viku síðan. Meiðsli hafa heldur betur sett strik í reikninginn hjá Torres á tímabilinu og í nóvember var jafnvel talið að hann þyrfti að gangast undir aðgerð vegna meiðsla í nára.
Margir undruðust því af hverju ekki var ákveðið að gera tvær aðgerðir á Torres í einu en Benítez greindi frá því að einfaldlega hefði ekki verið þörf á því að gera neitt varðandi nárameiðslin. Sú vinna sem Torres lagði á sig á æfingasvæðinu dag hvern gerði það að verkum að hann náði sér góðum af meiðslunum.
,,Vandamálið var í hnénu á honum og núna er allt í lagi," sagði Benítez. ,,Fernando ræddi við lækninn og staðan var betri en þeir bjuggust við. Hann verður ennþá frá í fimm til sex vikur en allt lítur vel út. Hvers vegna fór hann ekki í aðgerð á nára ? Einfaldlega vegna þess að læknirinn sagði að ekki væri þörf á því."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

