| Sf. Gutt
Enn er rætt um að Liverpool hafi áhuga á að fá Kenwyne Jones sóknarmann Sunderland. Í flestum fjölmiðlum hefur verið talið að forráðamenn Liverpool og Sunderland hafi átt viðræður um lánssamning.
Á vefsíðu BBC, nú fyrr í vikunni, er sagt að Liverpool vilji fá sóknarmanninn að láni en Sunderland á að vilja selja hann og ekki seinna en í sumar. Nokkur önnur félög eiga að hafa áhuga á Kenwyne sem hefur skorað sex mörk á keppnistímabilinu.
Á tímabili var rætt um skipti á Kenwyne og Ryan Babel en sá möguleiki mun ekki vera inni í myndinni. Steve Bruce, framkvæmdastjóri Sunderland, hefur sagt að hann vilji ekki láta Kenwyne fara. Það er ekki gott að segja hvað úr verður en eitthvað virðist enn vera í gangi með þetta mál.
TIL BAKA
Kemur Kenwyne Jones?
Enn er rætt um að Liverpool hafi áhuga á að fá Kenwyne Jones sóknarmann Sunderland. Í flestum fjölmiðlum hefur verið talið að forráðamenn Liverpool og Sunderland hafi átt viðræður um lánssamning. Á vefsíðu BBC, nú fyrr í vikunni, er sagt að Liverpool vilji fá sóknarmanninn að láni en Sunderland á að vilja selja hann og ekki seinna en í sumar. Nokkur önnur félög eiga að hafa áhuga á Kenwyne sem hefur skorað sex mörk á keppnistímabilinu.
Á tímabili var rætt um skipti á Kenwyne og Ryan Babel en sá möguleiki mun ekki vera inni í myndinni. Steve Bruce, framkvæmdastjóri Sunderland, hefur sagt að hann vilji ekki láta Kenwyne fara. Það er ekki gott að segja hvað úr verður en eitthvað virðist enn vera í gangi með þetta mál.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

