| Heimir Eyvindarson
TIL BAKA
Hópurinn er nógu sterkur
Rafael Benítez viðurkennir að hann muni halda áfram að reyna að styrkja leikmannahópinn nú í janúar, en vill þó meina að hópurinn sé sterkari en sumir haldi fram.
Maxi Rodriguez er eini leikmaðurinn sem hefur komið til Liverpool nú í janúar glugganum, en aftur á móti eru Andryi Voronin og Andrea Dossena farnir.
Nú fara sögur af því að Benítez sé á höttunum eftir öðrum framherja, enda varla vanþörf á þar sem Fernando Torres verður frá keppni næstu sex vikurnar. Kenwyne Jones hjá Sunderland mun hafa verið á óskalista Benítez og sagt er að Liverpool hafi boðið Sunderland skipti á honum og Ryan Babel, en hvorki Babel né Sunderland munu hafa verið til í það.
Það er ljóst að fjárhagsstaða félagsins er á þann veg að Benítez mun ekki hafa sig mikið í frammi á leikmannamarkaðnum í janúar.
,,Við sjáum hvað setur. Vonandi náum við að krækja í einhvern nú í janúar glugganum. Ef ekki, þá verðum við að halda áfram með það sem við höfum. Við erum með sterkan hóp, miklu sterkari en fólk heldur", segir Benítez.
,,Við þurfum að finna sjálfstraustið aftur, það er lykilatriði. Nú segja allir að við verðum að hafa tvo framherja í sama klassa og Torres. Ég segi á móti: Hvar fáum við slíka menn og hversu mikið þurfum við að borga fyrir þá?"
Benítez er þeirrar skoðunar að liðið sé fullgott til að taka þrjú stig úr leikjum án þess að Benayoun, Gerrard og Torres njóti við.
,,Það getur allt gerst í fótbolta og ef við náum 1-2 góðum úrslitum í röð þá kemur sjálfstraustið aftur og þá getur allt snúist til betri vegar á ný. Þegar Arsenal kom á Anfield (13. des.) talaði fólk um að þeir væru undir pressu og væru á góðri leið með að missa af lestinni í baráttunni um titilinn. Þeir unnu leikinn og nú, nokkrum vikum síðar, eru þeir í toppbaráttunni."
Benítez segir að það sé afar mikilvægt að liðið haldi haus út allan leikinn, það sé ótrúlega svekkjandi að fá á sig mörk á síðustu sekúndum leiksins.
,,Við verðum auðvitað að bæta okkar leik. Sýna betri leikskilning og stjórna leikjunum betur. Ef við getum ekki skorað meira en eitt mark í leik þá verðum við að gjöra svo vel að verjast betur, þannig að eitt mark dugi. Vörnin hefur alls ekki verið nógu sannfærandi í vetur og við verðum að bæta okkur þar."
Maxi Rodriguez er eini leikmaðurinn sem hefur komið til Liverpool nú í janúar glugganum, en aftur á móti eru Andryi Voronin og Andrea Dossena farnir. Nú fara sögur af því að Benítez sé á höttunum eftir öðrum framherja, enda varla vanþörf á þar sem Fernando Torres verður frá keppni næstu sex vikurnar. Kenwyne Jones hjá Sunderland mun hafa verið á óskalista Benítez og sagt er að Liverpool hafi boðið Sunderland skipti á honum og Ryan Babel, en hvorki Babel né Sunderland munu hafa verið til í það.
Það er ljóst að fjárhagsstaða félagsins er á þann veg að Benítez mun ekki hafa sig mikið í frammi á leikmannamarkaðnum í janúar.
,,Við sjáum hvað setur. Vonandi náum við að krækja í einhvern nú í janúar glugganum. Ef ekki, þá verðum við að halda áfram með það sem við höfum. Við erum með sterkan hóp, miklu sterkari en fólk heldur", segir Benítez.
,,Við þurfum að finna sjálfstraustið aftur, það er lykilatriði. Nú segja allir að við verðum að hafa tvo framherja í sama klassa og Torres. Ég segi á móti: Hvar fáum við slíka menn og hversu mikið þurfum við að borga fyrir þá?"
Benítez er þeirrar skoðunar að liðið sé fullgott til að taka þrjú stig úr leikjum án þess að Benayoun, Gerrard og Torres njóti við.
,,Það getur allt gerst í fótbolta og ef við náum 1-2 góðum úrslitum í röð þá kemur sjálfstraustið aftur og þá getur allt snúist til betri vegar á ný. Þegar Arsenal kom á Anfield (13. des.) talaði fólk um að þeir væru undir pressu og væru á góðri leið með að missa af lestinni í baráttunni um titilinn. Þeir unnu leikinn og nú, nokkrum vikum síðar, eru þeir í toppbaráttunni."
Benítez segir að það sé afar mikilvægt að liðið haldi haus út allan leikinn, það sé ótrúlega svekkjandi að fá á sig mörk á síðustu sekúndum leiksins.
,,Við verðum auðvitað að bæta okkar leik. Sýna betri leikskilning og stjórna leikjunum betur. Ef við getum ekki skorað meira en eitt mark í leik þá verðum við að gjöra svo vel að verjast betur, þannig að eitt mark dugi. Vörnin hefur alls ekki verið nógu sannfærandi í vetur og við verðum að bæta okkur þar."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

