| Ólafur Haukur Tómasson

Nathan Eccleston gerir nýjan samning

Ungstirnið Nathan Eccleston, sem hefur tekið þátt í tveimur leikjum Liverpool á leiktíðinni, hefur framlengt samning sinn við félagið um þrjú ár og er því samningsbundinn félaginu til ársins 2013. Talið er að önnur lið hafi verið farin að sýna þessum efnilega framherja áhuga og því hafi Liverpool þurft að hafa hraðar hendur til að missa hann ekki úr sínum röðum, meðal þeirra liða sem sögð voru hafa áhuga á honum voru Manchester United og Blackburn.

Eccleston kom í gegnum unglingastarf Liverpool og eru miklar væntingar gerðar til hans af þjálfaraliði Liverpool en hann þeytti frumraun sína þegar hann kom inná sem varamaður í deildarbikarleiknum gegn Arsenal fyrr á tímabilinu og kom inn á sem varamaður seint í leik Liverpool og Fulham í deildinni seinna þá viku.

Rafael Benítez segist vera ánægður með framfarir Eccleston og skorar á aðra ungliða Liverpool að leggja enn harðar að sér og freista þess að komast í aðalliðið.

"Það er mikilvægt fyrir okkur að halda ungu leikmönnunum sem við höfum. Eccleston er að gera það gott og hefur spilað með aðalliðinu gegn Arsenal og Fulham. Hann stendur sig vel með varaliðinu. Hann hefur gæði en mestu skiptir að hann heldur áfram að leggja hart að sér vegna þess að með hans hæfileika getur hann orðið góður leikmaður.

Við höfum nokkra góða unga leikmenn. Við erum mjög ánægðir með Emiliano Insua, Peter Gulacsi, Nabil El Zhar og fleiri leikmenn sem koma úr varaliðinu. Vonandi munum við sjá meira af þessum leikmönnum í framtíðinni." sagði Rafael Benítez.

Það er alls ekki ólíklegt að Eccleston muni fá fleiri tækifæri á leiktíðinni og vonandi vex hann upp sem næsta stórstjarna Liverpool.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan