| Sf. Gutt
Leik Liverpool og Tottenham Hotspur, sem átti að fara fram í gær, var frestað vegna vetrarríkis á Englandi en þar er nú harðasti vetur frá árinu 1963.
Hægt hefði verið að spila á Anfield í gær en leiknum var frestað, eins og svo mörgum á Englandi, vegna þess að ekki var treyst á samgöngur. Reyndar þótti sumum undarlegt að leikur Liverpool og Tottenham skyldi ekki fara fram því Arsenal og Everton léku á laugardaginn. Þar fóru nokkur þúsund stuðningsmanna frá Liverpool suður til norður London. Í gær hefði álíka fjöldi farið frá norður London norður til Liverpool. Hver var munurinn?
Næsti leikur á leikjadagskrá Liverpool er aukaleikurinn við Reading í F.A. bikarnum. Hann á að fara fram í Liverpool á miðvikudagskvöldið. En fer hann fram? Það kemur í ljós en spáð er kulda og snjókomu næstu daga á Englandi. Vissulega yrði það vont ef leiknum yrði frestað því leikjadagskráin er þétt til vors.
Hér er mynd af Anfield, sem var tekin fyrir helgi, og má sjá snjó á henni. Ekki er snjórinn mikill að sjá en heimildarmaður minn í borginni segir að snjóað hafi í Liverpool í gær.
Hér eru kuldalegar myndir af æfingu Liverpool á Melwood frá því á laugardaginn.
Hér eru vetrarmyndir frá Liverpool og nærsveitum af vefsíðu BBC.
TIL BAKA
Fleiri leikjum Liverpool frestað?
Leik Liverpool og Tottenham Hotspur, sem átti að fara fram í gær, var frestað vegna vetrarríkis á Englandi en þar er nú harðasti vetur frá árinu 1963. Hægt hefði verið að spila á Anfield í gær en leiknum var frestað, eins og svo mörgum á Englandi, vegna þess að ekki var treyst á samgöngur. Reyndar þótti sumum undarlegt að leikur Liverpool og Tottenham skyldi ekki fara fram því Arsenal og Everton léku á laugardaginn. Þar fóru nokkur þúsund stuðningsmanna frá Liverpool suður til norður London. Í gær hefði álíka fjöldi farið frá norður London norður til Liverpool. Hver var munurinn?
Næsti leikur á leikjadagskrá Liverpool er aukaleikurinn við Reading í F.A. bikarnum. Hann á að fara fram í Liverpool á miðvikudagskvöldið. En fer hann fram? Það kemur í ljós en spáð er kulda og snjókomu næstu daga á Englandi. Vissulega yrði það vont ef leiknum yrði frestað því leikjadagskráin er þétt til vors.
Hér er mynd af Anfield, sem var tekin fyrir helgi, og má sjá snjó á henni. Ekki er snjórinn mikill að sjá en heimildarmaður minn í borginni segir að snjóað hafi í Liverpool í gær.
Hér eru kuldalegar myndir af æfingu Liverpool á Melwood frá því á laugardaginn.
Hér eru vetrarmyndir frá Liverpool og nærsveitum af vefsíðu BBC.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

