| SSteinn

Ferðir klúbbsins framundan

Liverpoolklúbburinn á Íslandi í samvinnu við VITA ferðir mun bjóða upp á fjölmargar ferðir fyrir félagsmenn sína fram á vorið.  Nú gefst mönnum kostur á að velja sér ferð til að fara í, því hægt er að bóka í hvaða ferð sem er af þeim sem boðið er upp á.  Aldrei hefur verið jafn mikið framboð af ferðum áður, heilar 7 ferðir til viðbótar þeim sem nú þegar hefur verið farið í.  Takmarkað miðaframboð er í hverja af þessum ferðum, og því gildir áfram lögmálið fyrstur kemur fyrstur fær.  Að vanda sendum við þennan póst fyrst á póstlistann yfir greidda meðlimi í klúbbnum, áður en ferðirnar verða settar í almenna sölu.  Þeir sem greitt hafa félagsgjald klúbbsins fyrir þetta tímabil hafa því algjöran forgang í þessar ferðir og má fastlega búast við því að einhverjar þeirra muni fyllast eins og skot (eða nú þegar uppseldar) og því um að gera fyrir menn að hafa hraðar hendur.  Ferðirnar sem boðið verður upp á eru eftirtaldar:

Liverpool v Tottenham 8. - 11. janúar
Liverpool v Bolton 29. janúar  -  1. febrúar
Liverpool v Everton 5. - 8. febrúar
Liverpool v Portsmouth 12. -15. mars
Liverpool v Sunderland 26. -29. mars
Liverpool v West Ham 16. - 19. apríl
Liverpool v Chelsea 30. apríl - 3. maí

Flug:
Föstudagur KEF MAN FI 436 8:00 10:35
Mánudagur MAN KEF FI 436 11:25 15:40 (milllent í Glasgow)

Gisting:
Jurys Inn
31 Keel Wharf, Kings Waterfrond
L3 4FN
Liverpool

Verð:             
97.500 kr. á mann í tvíbýli

Innifalið:        
Flug, skattar, gisting í 3 nætur með morgunverði, rútur til og frá flugvelli og miði á völlinn

Verð í einbýli 126.000 kr.

ATH hægt að greiða 10.000 kr. með 15.000 vildarpunktum  (þá er verðið t.d. á mann í tvíbýli  87.500 + 15.000 vildarpunktar)

Nánari upplýsingar og bókanir hjá Ferðaskrifstofunni VITA í síma 570-4444, í tölvupósti [email protected] eða á www.vita.is
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan