| Sf. Gutt
Áramótin eru að baki og þá hefst baráttan um F.A. bikarinn. Liverpool vann þá keppni síðast árið 2006 en siðan hefur ekkert gengið hjá liðinu í þeirri keppni. Liverpool hefur komist stutt áfram í keppninni og það er snnarlega tími til kominn að breyting verði á slöku gengi liðsins í þessari keppni.
Síðasti titill Liverpool vannst á því Herrans ári 2006 þegar liðið vann Samfélagsskjöldinn eftir sigur í F.A. bikarnum fyrr á því sama ári. Liverpool á litla möguleika á Englandsmeistaratitlinum á þessu keppnistímabili og ekki munu Evrópubikarinn eða Deildarbikarinn koma til Liverpool borgar í vor. F.A. bikarinn og Evrópudeildarbikarinn eru möguleikar og krafan er einföld nú í upphafi árs. Rafael Benítez verður að koma titili í hús í vor!
- Liverpool hefur unnið F.A. bikarinn sjö sinnum.
- Síðasti sigur liðsins í keppninni var árið 2006. Í kjölfarið vannst Skjöldurinn um sumarið en það er síðasti titillinn sem Liverpool hefur unnið.
- Í liðshóp Liverpool eru aðeins þrír leikmenn sem unnu bikarinn 2006.
- Þetta eru þeir Jose Reina, Jamie Carragher og Steven Gerrard.
- Þeir Jamie og Steven urðu líka bikarmeistarar árið 2001.
- Liverpool hefur aldrei áður mætt Reading í F.A. bikarnum. Reyndar hafa liðin aðeins mæst sex sinnum í sögunni.
Það hefur verið mikið fjallað um vandræðaganginn á Liverpool en það ætti að vera komið sjálfstraust í liðið eftir tvo sigra í röð um jólin. Liðið var ekki sannfærandi í leikjunum en sigrarnir voru fyrir öllu. Sigurmarkið gegn Aston Villa á þriðjudaginn, sem kom í meiðslatíma, hlýtur að hafa hresst menn heldur betur við.
Ef þessi leikur hefði farið fram fyrir mánuði þá hefði maður veðjað á að Reading gæti náð hagstæðum úrslitum. En Brendan Rodgers, stjórinn þeirra, er farinn og liðið á í miklum erfiðleikum. Það er einfaldlega ekki nógu gott að hafa aðeins unnið einn heimasigur á allri leiktíðinni og ég á ekki von á að liðið breyti þeirri tölfræði í þessum síðdegis leik.
Úrskurður: Reading v Liverpool 0:2.
TIL BAKA
Mark spáir í spilin
Áramótin eru að baki og þá hefst baráttan um F.A. bikarinn. Liverpool vann þá keppni síðast árið 2006 en siðan hefur ekkert gengið hjá liðinu í þeirri keppni. Liverpool hefur komist stutt áfram í keppninni og það er snnarlega tími til kominn að breyting verði á slöku gengi liðsins í þessari keppni.Síðasti titill Liverpool vannst á því Herrans ári 2006 þegar liðið vann Samfélagsskjöldinn eftir sigur í F.A. bikarnum fyrr á því sama ári. Liverpool á litla möguleika á Englandsmeistaratitlinum á þessu keppnistímabili og ekki munu Evrópubikarinn eða Deildarbikarinn koma til Liverpool borgar í vor. F.A. bikarinn og Evrópudeildarbikarinn eru möguleikar og krafan er einföld nú í upphafi árs. Rafael Benítez verður að koma titili í hús í vor!
Fróðleiksmolar...
- Liverpool hefur unnið F.A. bikarinn sjö sinnum.
- Síðasti sigur liðsins í keppninni var árið 2006. Í kjölfarið vannst Skjöldurinn um sumarið en það er síðasti titillinn sem Liverpool hefur unnið.
- Í liðshóp Liverpool eru aðeins þrír leikmenn sem unnu bikarinn 2006.
- Þetta eru þeir Jose Reina, Jamie Carragher og Steven Gerrard.
- Þeir Jamie og Steven urðu líka bikarmeistarar árið 2001.
- Liverpool hefur aldrei áður mætt Reading í F.A. bikarnum. Reyndar hafa liðin aðeins mæst sex sinnum í sögunni.
Spá Mark Lawrenson
Reading v Liverpool
Reading v Liverpool
Það hefur verið mikið fjallað um vandræðaganginn á Liverpool en það ætti að vera komið sjálfstraust í liðið eftir tvo sigra í röð um jólin. Liðið var ekki sannfærandi í leikjunum en sigrarnir voru fyrir öllu. Sigurmarkið gegn Aston Villa á þriðjudaginn, sem kom í meiðslatíma, hlýtur að hafa hresst menn heldur betur við.
Ef þessi leikur hefði farið fram fyrir mánuði þá hefði maður veðjað á að Reading gæti náð hagstæðum úrslitum. En Brendan Rodgers, stjórinn þeirra, er farinn og liðið á í miklum erfiðleikum. Það er einfaldlega ekki nógu gott að hafa aðeins unnið einn heimasigur á allri leiktíðinni og ég á ekki von á að liðið breyti þeirri tölfræði í þessum síðdegis leik.
Úrskurður: Reading v Liverpool 0:2.


Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

