| Ólafur Haukur Tómasson

Hverjir gætu komið? Hluti II

Þá líður senn að áramótunum og opnun félagsskiptagluggans sem opnar í byrjun janúar. Gengi Liverpool hefur ekki verið ásættanlegt og liðið er þegar þetta er skrifað í sjöunda sæti deildarinnar, tólf stigum á eftir efsta liði. Margar ástæður spila eflaust stórt hlutverk í þessu slaka gengi en lykilmenn hafa ýmist verið meiddir eða spilað undir getu og því er ekki ólíklegt að Rafael Benítez, sem hlotið hefur mikla gagnrýni undanfarna mánuði, muni leita eftir því að styrkja leikmannahóp sinn. Eins og eðlilegt er þá ber sögum um fjármagn Benítez til leikmannakaupa ekki saman en sumar heimildir telja hann þurfa að selja til að kaupa á meðan að aðrar telja að hann fái pening til leikmannakaupa og gróða af sölu leikmanna, hvaða sögur reynast réttar verður að koma í ljós og er algjörlega ómögulegt að spá til um hvað muni gerast.

Margir leikmenn liðsins hafa fengið lítið hlutverk á tímabilinu eða nýtt tækifærin sín illa og er ekki ólíklegt að Benítez muni reyna að selja þá leikmenn til að fá meiri pening í hendurnar. Meðal þeirra leikmanna sem gjarnan eru taldir vera á sölulista Liverpool eru Andriy Voronin, Ryan Babel, Andrea Dossena, Philipp Degen og hafa heyrst orðrómar um að Javier Mascherano og Albert Riera vilji burt frá félaginu en ekkert hefur fengið staðfest í þeim málum.

Eins og í upphafi undanfarinna félagsskiptaglugga þá mun koma smá samantekt af þeim nöfnum sem orðaðir hafa verið við félagið síðustu vikurnar og þeir leikmenn sem hugsanlega gætu gengið í raðir Rauða hersins á nýju ári. Þetta er annar hlutinn.

Goran Pandev:
Fyrir nokkrum dögum síðan fékk Makedónski framherjinn sig lausan af samningi við Lazio sem átti að renna út í lok leiktíðarinnar en hann var bað um að fara frá félaginu síðasta sumar og fór það ekki vel í forráðamenn Lazio sem settu hann út í kuldann. Hann hefur þurft að æfa sjálfur í vetur og ekki leikið með Lazio á tímabilinu, hann ákvað að kæra og vann réttarhöldin sem þýðir að Lazio leyfir honum að fara frítt í janúar. Hann hefur leikið 159 leiki fyrir Lazio og skorað 48 mörk.

Pandev sem er hraður og leikinn framherji getur einnig spilað vinstra meginn á vellinum og jafnvel í holunni fyrir aftan sóknarmennina. Hann var metinn á nítján milljónir evra hjá Pandev og því þykir mikill fengur að geta fengið þennan strák á frjálsri sölu eftir áramót og hafa lið á borð við Bayern Munchen, Inter Milan, Napoli, Liverpool, Manchester United og Tottenham.

Talið er að Inter sé hans líklegasti áfangastaður en hann var þar áður en lék aldrei fyrir aðalliðið og var lánaður til liða í neðri deildum, Liverpool er hins vegar sagt ætla að freista þess að stela Pandev úr höndunum á Inter og jafnvel að hann sé efstur á óskalista Rafael Benítez.


Carlton Cole:
Hávaxni og sterki framherjinn, Carlton Cole kom upp úr unglingastarfi Chelsea en leikur nú með West Ham United. Svolítið óvanalegt því það er jú algengara að leikmenn fari úr unglingastarfi West Ham og yfir til stærri liða væri þá helst hægt að nefna Frank Lampard, Joe Cole, Michael Carrick, Paul Ince Rio Ferdinand og Glen Johnson.

Cole náði ekki að standast undir þeim væntingum sem gerðar voru til hans hjá Chelsea og var hann lánaður til Wolves, Charlton og Aston Villa þar sem hann náði ekki alveg að sýna sitt rétta andlit heldur en sumarið 2006 gekk hann í raðir West Ham. Þar hefur hann stigið leik sinn upp og unnið sér inn sæti í enska landsliðshópnum.

Hann er rúmir 190 sentimetrar á hæð, býr yfir miklum líkamsstyrk og miklum hraða svo gífurlega erfitt er að eiga við hann. Hann er afar öflugur skallamaður og góður klárari. Frammistöður hans hjá West Ham hafa vakið áhuga Liverpool, Tottenham, Manchester United og meira að segja Chelsea. Á tímabilinu hefur hann verið einn af afar fáu ljósu punktunum í liði West Ham en hann hefur skorað sjö mörk í þrettán leikjum liðsins á tímabilnu.

Kaupverðið á honum gæti reynst of mikið fyrir Liverpool enda eru enskir landsliðsmenn ekki ódýrir en vegna fjárhagsörðugleika West Ham væri kanski hægt að prútta vermiðan niður um einhverjar milljónir en líklega færi hann aldrei neðar en tíu til fimmtán milljónir punda.

Scott Parker:
Þessi 29 ára gamli miðjumaður er uppalinn hjá Charlton Athletic en gekk síðar til liðs við Chelsea þar sem hann staldraði aðeins við í eitt tímabil og gekk honum afar illa að festa sig í liðinu vegna þrálátra meiðsla. Chelsea gafst svo upp á honum og seldi hann til Newcastle sumarið 2005.

Hjá Newcastle var ferill hans töluvert betri en hjá Chelsea og var hann meðal annars gerður að fyrirliða liðsins ári eftir að kom til félagsins. Hann lék 55 leiki hjá Newcastle og skoraði fjögur mörk en meiðsli hrjáðu hann einnig hjá Newcastle.

Sumarið 2007 gekk hann loks til liðs við West Ham, þar sem hann er enn í dag, en því miður fyrir hann þá fylgdu meiðslin honum til Lundúna og lék hann ekki með liðinu fyrr en í lok september sama ár. Hann hefur leikið 64 leiki fyrir West Ham og skorað tvö mörk. Hann hefur einnig leikið þrjá leiki fyrir enska landsliðið og vonast með þeirri frammistöðu sem hann hefur sýnt á tímabilinu að hann nái að vinna sér inn sæti hjá Capello fyrir Heimsmeistaramótið í sumar.

Hann er varnarsinnaður miðjumaður sem býr yfir góðri sendingagetu, harður í tæklingum, styrk í loftinu og miklum líkamsstyrk. Kaupverðið á honum gæti verið á bilinu fimm til tíu milljónir punda og er hann orðaður sem hugsanlegur eftirmaður Javier Mascherano muni hann yfirgefa félagið.

Matthew Upson:
Þetta er þriðji leikmaður West Ham í þessum pakka og færumst við aftar á völlinn því nú er það varnarmaður. Upson er uppalinn hjá Luton en gekk fljótt í raðir Arsenal þar sem hann var í sex ár og lék 35 leiki. Ekki vann hann sér inn sæti hjá Arsenal og var lánaður til Notthingham Forrest, Crystal Palace og Reading áður en hann var seldur til Birmingham árið 2003.

Hann lék 113 leiki fyrir Birmingham á þeim fjórum árum sem hann var hjá liðinu og árið 2007 var hann seldur til West Ham sem hafði betur í baráttunni við önnur Úrvalsdeildarfélög sem vildu undirskrift kappans, til dæmis Liverpool sem sagt var hafa mikinn áhuga á honum.

Hann hefur verið óheppinn með meiðsli hjá West Ham en hæfileikar hans fara ekki huldu höfði og er hann lykilmaður í liði West Ham og hefur leikið 83 leiki með liðinu. Hann á að baki sér átján landsleiki með enska landsliðinu.

Rafael Benítez vildi kaupa þennan sterka miðvörð í sumar en vegna skyndilegs skorts á fjármagni þurfti hann að nýta þær tvær milljónir punda sem hann átti til að kaupa varnarmann í Grikkjan Sotiris Kyrgiakos en verðmiðinn á Upson er í kringum tíu milljónir punda og fái Benítez nægan pening þá er alls ekki ólíklegt að hann reyni aftur að fá hann í sínar raðir.

Simon Kjaer:
Hinn tvítugi Simon Kjaer er einn allra eftirsóttasti bitinn á markaðnum í dag og eru öll stærstu lið Evrópu, þar á meðal Liverpool, á eftir honum. Hann er á mála hjá ítalska liðinu Palermo en hann hefur verið þar síðan árið 2008.

Simon er miðvörður og er hraður, sterkur og harður leikmaður sem hefur slegið í gegn hjá Palermo og hrellir nokkra af öflugustu framherjum heims vikulega. Hann er uppalinn hjá danska liðinu FC Midtjylland og vakti gífurlega athygli á sínu fyrsta tímabili hjá aðalliðnu og hafði Palermo betur í baráttunni við stærstu félagsslið heims um undirskrift hans.

Hann er ekki ókunnugur öðrum miðverði Liverpool, en þessa dagana myndar hann miðvarapar danska landsliðsins með Daniel Agger, miðverði Liverpool. Það gæti því orðið góður áfangastaður fyrir Simon en ásamt Agger er Nikola Saric og Martin Hansen, samlandar hans á mála hjá Liverpool sem og Íslendingurinn Guðlaugur Victor Pálsson sem bjó um tíma í Danmörku.

En eins og áður segir þá er áhugi á honum mikill og því gæti verðmiðinn á honum verið yfir tíu milljónir punda en miðað við aldur hans og gæði þá er það alls ekki mikill peningur því þessi strákur gæti vel orðið einn öflugasti miðvörður heims.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan