| Sf. Gutt

Steven og Fernando í úrvalslið

Þeir Steven Gerrard og Fernando Torres voru valdir í lið ársins 2009 hjá Alþjóðaknattspyrnusambandinu. Rúmlega 50.000 atvinnumenn um allan heim tóku þátt í kjörinu. 

Lið ársins 2009 er þannig skipað: Iker Casillas (Real Madrid), John Terry (Chelsea), Nemanja Vidic (Manchester United), Patrice Evra (Manchester United), Daniel Alves (Barcelona), Xavi (Barcelona), Andres Iniesta (Barcelona), Steven Gerrard (Liverpool), Lionel Messi (Barcelona), Cristiano Ronaldo (Real Madrid) og Fernando Torres (Liverpool). 

Argentínumaðurinn  Lionel Messi var kosinn leikmaður árins í sama kjöri. Hann var líka kjörinn Knattspyrnumaður Evrópu á dögunum af franska tímaritinu France Football. Steven Gerrard varð tíundi í því kjöri.

Þeir Steven og Fernando hafa átt sæti í mörgum úrvalsliðum í hinum ýmsu kosningum frá þeir hófu að spila saman með Liverpool. Segir það sína sögu um hversu vel þeir hafa náð saman inni á vellinum.  


 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan