| Grétar Magnússon

Tap fyrir botnliðinu

Liverpool tapaði í dag sínum sjöunda leik í Úrvalsdeildinni og að þessu sinni var það botnlið Portsmouth sem stóðu uppi sem sigurvegarar 2-0.  Liðinu ætlar alls ekki að takast að komast á sigurbraut.

Athygli vakti að Alberto Aquilani var ekki í leikmannahópnum í dag en eftir leikinn sagði Benítez að Ítalinn hefði ekki getað æft sem skyldi í vikunni vegna smávægilegra meiðsla í kálfa.  Annars gerði Benítez þrjár breytingar á liðinu sem vann Wigan í miðri viku, Glen Johnson kom inn í vörnina fyrir Martin Skrtel sem þýddi að Carragher og Agger voru miðvarðaparið, Fernando Torres leiddi sóknina í stað David Ngog og Andrea Dossena kom svo inn á vinstri kantinn í stað Yossi Benayoun.  Ryan Babel var svo í leikmannahópnum að nýju eftir meiðsli en hann sat á bekknum.

Heimamenn byrjuðu af krafti og á 6. mínútu fengu þeir aukaspyrnu úti hægra megin, boltinn barst fyrir markið þar sem varnarmenn Liverpool hreinsuðu frá, sending barst inná teiginn aftur og þar var Frederic Piquionne ekki rangstæður en hann hljóp á Reina og datt eftir að hafa náð að snerta boltann, ekkert var dæmt enda boltinn á leiðinni útaf.

Á 15. mínútu sóttu leikmenn Liverpool upp vinstra megin og barst boltinn inná Torres á vítateignum, hann sneri við sendi boltann til hægri og þar kom Steven Gerrard og náði að skalla boltann fyrir fætur Dirk Kuyt sem hefði átt að gera betur er hann reyndi að koma skoti á markið en hitti ekki boltann.  Nokkrum mínútum síðar átti Fernando Torres gott skot að marki fyrir utan vítateig en boltinn fór yfir markið.

Fátt markvert gerðist svo fyrr en á 33. mínútu er heimamenn sóttu upp hægri kantinn og náðu sendingu fyrir markið, boltinn barst útí teiginn þar sem Reina gerði vel í að verja skot frá Kevin Prince-Boateng en boltinn barst upp í loft.  Glen Johnson reyndi að skalla boltann í hornspyrnu en hann gerði ekki betur en svo að skalla hann beint fyrir fætur Nadir Belhadj sem þrumaði boltanum í netið úr þröngu færi.  Mikill fögnuður braust út og nú sem oftar virtust leikmenn Liverpool ekki þola það mótlæti sem fylgir því að lenda undir.

Fimm mínútum síðar sendi Gerrard boltann inn á teig eftir aukaspyrnu og þar kom Daniel Agger aðvífandi en því miður skallaði hann boltann framhjá.  Daninn hefði átt að gera betur þarna og hann vissi uppá sig sökina.  Vendipunktur leiksins varð svo á 45. mínútu þegar Javier Mascherano braut nokkuð illilega á Tal Ben Haim og lágu þeir báðir í grasinu eftir.  Þegar Mascherano stóð upp sýndi Lee Mason honum rauða spjaldið og verður nú að segjast að þetta hafi verið nokkuð harður dómur.  Leikmenn Liverpool héldu því til búningsherbergja marki og manni undir.

Í síðari hálfleik reyndu gestirnir hvað þeir gátu til að sækja án þess að skilja of mikið svæði eftir fyrir heimamenn til að nýta sér.  Á 66. mínútu náði Gerrard skoti úr teignum, boltinn fór í Hermann Hreiðarsson og markvörður Portsmouth, sem var kominn úr jafnvægi, rétt náði að slá hendinni í boltann sem stefndi í markið.

Fernando Torres reyndi hvað hann gat til að verða fljótasti leikmaður í sögu félagsins til að ná 50 mörkum í deildinni og braust hann inná vítateiginn vinstra megin og komst framhjá tveimur varnarmönnum Portsmouth, hann hikaði með skotið og reyndi frekar að komast framhjá einum í viðbót en eins og oft vill gerast í svona aðstæðum komst hann ekki lengra.  Eftir á að hyggja hefði hann átt að skjóta þegar færi gafst.  Jamie Carragher, í sínum 600. leik, átti svo skot himinhátt yfir stuttu síðar er boltinn barst til hans í vítateignum eftir hornspyrnu.

Á 82. mínútu leiksins náðu heimamenn að skora sitt annað mark í leiknum er Kevin Prince-Boateng gerði vel upp við endamörkin hægra megin og vann boltann af Daniel Agger.  Hann sendi boltann fyrir þar sem Frederic Piquionne náði boltanum, setti hann upp í loft og skaut svo að marki úr þröngu færi, boltinn í netinu og heimamenn ærðust af fögnuði.  Jamie Carragher, sem var í Piquionne hreinlega horfði bara á og leyfði honum að skjóta óáreittur að marki !

Eitt færi leit dagsins ljós hjá gestunum tveim mínútum fyrir leikslok er Steven Gerrard náði skoti úr vítateignum vinstra megin en boltinn skoppaði framhjá.

Dómarinn flautaði svo til leiksloka og 2-0 tap gegn botnliði deildarinnar staðreynd.  Leikmenn og þjálfarar Liverpool verða nú að fara að taka sig saman í andlitinu ef ekki á illa að fara á þessu tímabili.  Liðið er nú jafn mörgum stigum frá toppsæti deildarinnar eins og botnsætinu, í 7. sæti deildarinnar.

Portsmouth:  Begovic, Ben-Haim, Kaboul, Hreiðarsson, Finnan, O'Hara, Brown, Boateng (Mullins, 90. mín.), Belhadj, Yebda, Piquionne (Kanu 90. mín.).  Ónotaðir varamenn:  Ashdown, Hughes, Utaka, Wilson og Dindane.

Mörk Portsmouth:  Nadir Belhadj (33. mín.) og Frederic Piquionne (82. mín.).

Gul spjöld:  Hassan Yebda og Frederic Piquionne.

Liverpool:  Reina, Johnson, Agger, Carragher, Insua (Aurelio 68.mín), Lucas (Spearing 88. mín), Mascherano, Dossena (Benayoun 53. mín.), Kuyt, Gerrard, Torres.  Ónotaðir varamenn:  Cavalieri, Skrtel, Babel og Ngog.

Gul spjöld:  Lucas Leiva, Fernando Torres og Glen Johnson.

Rautt spjald:  Javier Mascherano.

Áhorfendur á Fratton Park:  20.534.

Maður leiksins:  Erfitt er að velja einhvern leikmann sem stendur uppúr en Jamie Carragher verður fyrir valinu einfaldlega vegna þess að hann spilaði sinn 600. leik fyrir félagið.  Carragher vill nú örugglega gleyma þessum leik hið fyrsta.

Rafael Benítez:  ,,Það er alltaf svekkjandi að tapa.  Mér fannst við hafa boltann mikið í fyrri hálfleik og við stjórnuðum leiknum, en við fengum á okkur mark eftir mistök og eftir brottreksturinn varð þetta enn erfiðara.  Ég er handviss um að þeir voru ekki að ógna okkur en ein mistök kostuðu okkur mark en eins og ég segi þá breyttist svo allt þegar við fengum rautt spjald.  Í síðari hálfleik þurftum við að sækja með 10 menn sem þýddi að við skildum eftir pláss sem þeir nýttu sér mjög vel."

Fróðleikur

- Jamie Carragher spilaði sinn 600. leik fyrir félagið.

- Liðið hefur nú tapað sjö leikjum í deildinni á tímabilinu og sitja í sjöunda sæti deildarinnar.




TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan