| Sf. Gutt

Ungliðarnir áfram

Unglingabikarkeppnin er hafin. Ungliðar Liverpool komust yfir fyrstu hindrun sína í kvöld þegar þeir lögðu Wolverhampton Wanderes að velli 2:0 á Anfield Road.

Liverpool hóf leikinn af krafti og strax eftir nokkrar mínútur komst Tom Ince í gott færi en hann skaut framhjá. Tom átti svo aftur svipað færi en aftur fór boltinn framhjá. Honum tókst betur upp á 35. mínútu. Andre Wisdom sendi þá inn á vítateiginn vinstra megin og nú smellti Tom boltanum neðst í hornið fjær.

Eftir þetta hafði Liverpool sterk tök á leiknum og á 56. mínútu styrkti liðið stöðu sína enn frekar. Ungverjinn Krisztian Adorjan fékk þá boltann utan vítateigs. Hann lék framhjá nokkrum leikmönnum og inn í teiginn þaðan sem hann sendi boltann í markið. Vel gert. Bæði lið hefðu getað skorað það sem eftir lifði leiks en fleiri urðu mörkin ekki. Liverpool er komið í fjórðu umferð keppninnar og það verður gaman að sjá hvernig gengur þar.

Liverpool: Chamberlain, Flanagan, Robinson, Wisdom, McGiveron, Coady, Buchtmann, Roberts, Ngoo, Adorjan (Pepper 84. mín.) og Ince. Ónotaðir varamenn: Sama, Jacob, Roddan og Morgan.
 
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Andre Wisdom.

Unglingalið Liverpool komst í úrslit keppninnnar á síðasta keppnistímabili en tapaði báðum úrslitaleikjunum fyrir Arsenal. Nú er að sjá hversu langt liðið kemst núna. Liðið er mjög ungt en það eru margir efnilegir leikmenn í því.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan