| Mummi

Fánadagur Liverpoolklúbbsins í Hvítahúsinu

Liverpoolklúbburinn á Íslandi mun halda fánadag í Hvítahúsinu, heimavelli klúbbsins á Selfossi, þegar að nágrannaslagur Liverpool og Everton verður sunnudaginn 29. nóvember. Þetta er fyrsti fánadagurinn sem Liverpoolklúbburinn heldur í Hvítahúsinu en þessir tveir aðilar hófu samstarf nú í haust.

Það verður mikið um dýrðir þennan dag og um að gera fyrir stuðningsmenn Liverpool að mæta snemma og taka þátt í gleðinni. Staðurinn verður velskreyttur með Liverpool fánum og flöggum, verðlaun verða veitt fyrir best klædda yngri og eldri stuðningsmanninn, getraun verður í gangi fyrir leik og margt fleira. Þá taka stjórnarmenn klúbbsins við skráningum á staðnum og búa að sjálfsögðu til ekta Kop stemmningu yfir leiknum, svo að þetta verði næstum því eins og í útlandinu.

Húsið opnar kl. 12 á hádegi og leikurinn hefst kl. 13.30 og verða vegleg tilboð í gangi fyrir alla Púllara.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan