| Sf. Gutt
"Hann er nógu góður til að aðlagast knattspyrnunni hérna. Hann er mjög snjall leikmaður og áttar sig á hvernig knattspyrnan hérna er. Það er mikill hraði í leikjum hérna á Englandi og maður fær ekki mikinn tíma. Maður verður að hugsa áður en boltinn kemur til manns. Á Ítalíu fær maður nokkrar sekúndur til að hugsa og horfa í kringum sig. Hér fær maður bara eina sekúndu og svo verður maður að koma boltanum áfram. Ef maður gerir það ekki fær maður tvo eða þrjá mótherja í sig."
Andrea talar hér af reynslunni því honum hefur ekki gengið vel að fóta sig í ensku knattspyrnunni. Ítalir hafa í heildina séð ekki látið mikið að sér kveða á Englandi en Andrea hefur tröllatrú á landa sínum.
"Hann er frábær leikmaður og ég get ekki beðið eftir að sjá hann spila í Úrvalsdeildinni. Hann á eftir að verða lykilmaður í liðinu okkar. Hæfileikar Alberto bjóða upp á meiri fjölbreytni í leik liðsins því hann getur spilað á miðjunni eða þá fyrir aftan framherjana með Stevie. Ég er ánægður með að við skyldum hafa keypt hann því hann er fínasti strákur, frábær leikmaður og ég er viss um að honum á eftir að vegna mjög vel hérna hjá félaginu."
TIL BAKA
Andrea hefur trú á landa sínum

Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan