| Grétar Magnússon
Það má með sanni segja að fréttir af meiðslum og endurhæfingu leikmanna hafa verið áberandi á þessum vef undanfarnar vikur. Nú berast góðar fréttir af þremur leikmönnum og betri horfur eru með þá tvo sem meiddust í síðasta leik.
Rafa Benítez er nokkuð viss um að geta notað þá Steven Gerrard, Daniel Agger og Glen Johnson gegn Manchester City á laugardaginn. Eins og við greindum frá fyrr í dag hefur Gerrard sjálfur lýst því yfir að hann sé tilbúinn í slaginn en það er víst Benítez sem tekur lokaákvörðunina.
Fernando Torres mun ekki spila á laugardaginn þar sem hann er ennþá í endurhæfingu vegna meiðsla sinna.
Benítez sagði í viðtali við opinbera heimasíðu félagsins: ,,Agger er í lagi. Hann átti í smávægilegum meiðslum í baki en hann er að æfa. Það var mjög góð ákvörðun hjá landsliðsþjálfara Danmerkur (að draga hann út úr hópnum) vegna þess að hann er mun betri núna. Ég held að hann verði klár um helgina."
,,Johnson hefur verið að æfa en ekki að fullu, hann verður því vonandi einnig tiltækur um helgina. Gerrard er að bæta sig. Hann kláraði heila æfingu í dag og ef hann heldur áfram þá getur hann spilað líka. Fernando Torres er að æfa með sjúkraþjálfurunum þannig að ég held að hann verði ekki klár."
Benítez fékk einnig góðar fréttir varðandi þá Albert Riera og Yossi Benayoun en báðir meiddust aftan í læri gegn Birmingham. Talið var að þeir yrðu frá í a.m.k. fjórar vikur en það gæti breyst.
,,Ég talaði í upphafi um fjórar vikur en þeir eru að vinna vel með sjúkraþjálfurunum og gera sérstakar æfingar. Við verðum að athuga með þá en kannski verða þeir tilbúnir fyrr en áætlað var."
Að lokum eru svo fréttir af David Ngog og Fabio Aurelio en sá fyrrnefndi nefbrotnaði í leik með franska U-21 árs landsliðinu, það ætti þó ekki að aftra honum frá því að spila næsta leik. Aurelio þurfti að draga sig útúr brasilíska landsliðshópnum vegna meiðsla á kálfa en hann var í fyrsta skipti valinn í hópinn.
,,Við vitum að Ngog nefbrotnaði en það er ekki alvarlegt," sagði Benítez. ,,Ég veit ekki stöðuna á honum því við höfum ekki séð hann en ég held að hann verði í lagi. Varðandi Aurelio þá er það synd því hann hefur beðið eftir landsliðskallinu í langan tíma, þegar hann fékk svo tækifærið þá átti hann við meiðsli að stríða. Hann er að jafna sig en á ennþá í smávægilegum vandræðum með kálfann. Það verður erfitt fyrir hann að spila gegn City."
TIL BAKA
Meiðslafréttir
Það má með sanni segja að fréttir af meiðslum og endurhæfingu leikmanna hafa verið áberandi á þessum vef undanfarnar vikur. Nú berast góðar fréttir af þremur leikmönnum og betri horfur eru með þá tvo sem meiddust í síðasta leik.Rafa Benítez er nokkuð viss um að geta notað þá Steven Gerrard, Daniel Agger og Glen Johnson gegn Manchester City á laugardaginn. Eins og við greindum frá fyrr í dag hefur Gerrard sjálfur lýst því yfir að hann sé tilbúinn í slaginn en það er víst Benítez sem tekur lokaákvörðunina.
Fernando Torres mun ekki spila á laugardaginn þar sem hann er ennþá í endurhæfingu vegna meiðsla sinna.
Benítez sagði í viðtali við opinbera heimasíðu félagsins: ,,Agger er í lagi. Hann átti í smávægilegum meiðslum í baki en hann er að æfa. Það var mjög góð ákvörðun hjá landsliðsþjálfara Danmerkur (að draga hann út úr hópnum) vegna þess að hann er mun betri núna. Ég held að hann verði klár um helgina."
,,Johnson hefur verið að æfa en ekki að fullu, hann verður því vonandi einnig tiltækur um helgina. Gerrard er að bæta sig. Hann kláraði heila æfingu í dag og ef hann heldur áfram þá getur hann spilað líka. Fernando Torres er að æfa með sjúkraþjálfurunum þannig að ég held að hann verði ekki klár."
Benítez fékk einnig góðar fréttir varðandi þá Albert Riera og Yossi Benayoun en báðir meiddust aftan í læri gegn Birmingham. Talið var að þeir yrðu frá í a.m.k. fjórar vikur en það gæti breyst.
,,Ég talaði í upphafi um fjórar vikur en þeir eru að vinna vel með sjúkraþjálfurunum og gera sérstakar æfingar. Við verðum að athuga með þá en kannski verða þeir tilbúnir fyrr en áætlað var."
Að lokum eru svo fréttir af David Ngog og Fabio Aurelio en sá fyrrnefndi nefbrotnaði í leik með franska U-21 árs landsliðinu, það ætti þó ekki að aftra honum frá því að spila næsta leik. Aurelio þurfti að draga sig útúr brasilíska landsliðshópnum vegna meiðsla á kálfa en hann var í fyrsta skipti valinn í hópinn.
,,Við vitum að Ngog nefbrotnaði en það er ekki alvarlegt," sagði Benítez. ,,Ég veit ekki stöðuna á honum því við höfum ekki séð hann en ég held að hann verði í lagi. Varðandi Aurelio þá er það synd því hann hefur beðið eftir landsliðskallinu í langan tíma, þegar hann fékk svo tækifærið þá átti hann við meiðsli að stríða. Hann er að jafna sig en á ennþá í smávægilegum vandræðum með kálfann. Það verður erfitt fyrir hann að spila gegn City."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

