| Grétar Magnússon

Landsleikir

Nokkrir leikmenn Liverpool spiluðu með landsliðum sínum í gær, laugardag.  Sjaldan hafa jafn fáir leikmenn verið í eldlínunni því margir voru ekki valdir vegna meiðsla.

Sotirios Kyrgiakos og félagar hans í Gríska landsliðinu spiluðu sennilega mikilvægasta leikinn af þeim leikmönnum sem spiluðu en Grikkir leika nú í umspili við Úkraínumenn um hvort liðið kemst á HM næsta sumar.

Fyrri leikurinn fór fram á heimavelli Grikkja og lauk leiknum með markalausu jafntefli.  Kyrgiakos spilaði allan leikinn í vörn heimamanna en nú verður að teljast líklegra að Úkraínumenn fari áfram því síðari leikur liðanna fer fram í Kænugarði á miðvikudaginn.  Andriy Voronin var ekki valinn í landslið Úkraínumanna að þessu sinni.

Í öðrum umspilsleik kom Nicolas Anelka, fyrrum lánsmaður Liverpool, sinni þjóð í góða stöðu með sigurmarki gegn Írum á útivelli. Mark hans var það eina sem skorað var í leiknum. 

Spánverjar og Argentínumenn mættust í vináttulandsleik á Spáni þar sem Pepe Reina spilaði lokamínútur leiksins fyrir Spánverja.  Javier Mascherano spilaði allan leikinn fyrir Argentínumenn og var að vanda fyrirliði liðsins.  Það var svo fyrrum leikmaður Liverpool, Xabi Alonso, sem skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri.

Dirk Kuyt spilaði allan leikinn með Hollendingum er þeir gerðu markalaust jafntefli við Ítali.  Ryan Babel kom inná sem varamaður í leiknum.

Philipp Degen lék með Svisslendingum gegn Noregi og átti hann sök á víti sem Norðmenn fengu dæmt.  John Carew skoraði úr vítinu og lauk leiknum með 1-0 sigri frænda okkar í Noregi.

Síðast en ekki síst spilaði Martin Skrtel allan leikinn með Slóvökum er þeir unnu Bandaríkjamenn 1-0 í Bratislava.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan