| Sf. Gutt
Ítalinn Alberto Aquilani er búinn að taka sín fyrstu skref með aðalliði Liverpool. Áður en hann tók þau könnuðum við hvernig ykkur, lesendum Liverpool.is, litist á komu hans til Englands. Það var sem sem sagt spurt um hvernig þið telduð að honum myndi vegna hjá Liverpool.
Í ljós kom að margir töldu að honum ætti eftir að vegna mjög vel. Þó nokkrir töldu að gengi hans ætti eftir að vera þokkalegt. Nokkru færri voru ekki vissir í sinni sök en fáir spá honum hrakförum. Þá er að sjá hvað úr verður.
Kaupin á Alberto eru einstök í sögu Liverpool því ekki veit ég til þess að neinn leikmaður hafi verið keyptur meiddur og reyndar það mikið meiddur að alls óvíst var um hvenær hann gæti farið að leika með liðinu. Reyndar munu nú meiðsli hans hafa verið verri en fyrst var talið en kaup á meiddum mönnum eru fátíð hjá stærstu félögum heimsins. Vonandi hefur ekki verið keyptur köttur í sekk.
Hér er niðurstaðan úr könnuninni!
Hann á eftir að blómstra! 55%
Svona þokkalega. 20%
Ég er ekki viss. 16%
Hann á ekki eftir að reynast vel. 9%
Heildarfjöldi atkvæða: 1397.
TIL BAKA
Ykkar skoðun
Ítalinn Alberto Aquilani er búinn að taka sín fyrstu skref með aðalliði Liverpool. Áður en hann tók þau könnuðum við hvernig ykkur, lesendum Liverpool.is, litist á komu hans til Englands. Það var sem sem sagt spurt um hvernig þið telduð að honum myndi vegna hjá Liverpool. Í ljós kom að margir töldu að honum ætti eftir að vegna mjög vel. Þó nokkrir töldu að gengi hans ætti eftir að vera þokkalegt. Nokkru færri voru ekki vissir í sinni sök en fáir spá honum hrakförum. Þá er að sjá hvað úr verður.
Kaupin á Alberto eru einstök í sögu Liverpool því ekki veit ég til þess að neinn leikmaður hafi verið keyptur meiddur og reyndar það mikið meiddur að alls óvíst var um hvenær hann gæti farið að leika með liðinu. Reyndar munu nú meiðsli hans hafa verið verri en fyrst var talið en kaup á meiddum mönnum eru fátíð hjá stærstu félögum heimsins. Vonandi hefur ekki verið keyptur köttur í sekk.
Hér er niðurstaðan úr könnuninni!
Hann á eftir að blómstra! 55%
Svona þokkalega. 20%
Ég er ekki viss. 16%
Hann á ekki eftir að reynast vel. 9%
Heildarfjöldi atkvæða: 1397.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

