| Sf. Gutt

Stórsigur varaliðsins!

Varalið Liverpool hélt áfram á sömu braut í gærkvöldi og vann enn einn leikinn. Liverpool burstaði Hull City 4:1 á Prenton Park og vann þar með sinn sjöunda deildarleik í röð.

Liverpool tók strax öll völd á vellinum og liðið hefði getað verið búið að skora þegar fyrsta markið kom á 25. mínútu. Svíinn Alex Kacaniklic komst þá upp að endamörkum vinstra megin og sendi út í teiginn á David Amoo. Hann stóð af sér atlögu varnarmanns og sendi boltann í netið rétt utan markteigs. Markmaður Hull kom í veg fyrir að forysta Liverpool væri enn meiri í hálfleik þegar hann varði meistaralega langskot Daniel Pacheco. Spánverjinn smávaxni átti stórleik eins og svo oft á leiktíðinni. 

Yfirburðir Liverpool voru jafnvel enn meiri í síðari hálfleik og næsta mark kom strax á 47. mínútu. Daniel lék þá laglega upp að endamörkum vinstra megin þaðan sem hann sendi fyrir á Nathan Eccleston. Hann lét ekki happ úr hendi sleppa og smellti boltanum í netið af stuttu færi. Þriðja mark hans í jafn mörgum leikjum. Fjórar mínútur liðu fram að næsta marki. Enn var David á ferðinni. Hann tók kraftmikla rispu upp kantinn og sendi út í teiginn á Danann Nikola Saric sem skoraði af öryggi.

Hver sókn Liverpool rak aðra og Daniel átti þrumuskot utan af velli sem small í stönginni. Guðlaugur Victor var varamaður að þessu sinni en hann kom inn á sem varamaður fyrir Nikola vin sinn. Guðlaugur lék á miðjunni og stóð fyrir sínu. Á 75. mínútu komst Liverpool í 4:0. Enn tók Daniel rispu og sendi fyrir markið á David. Hann skaut að marki en markmaður Hull varði vel. David var þó vel vakandi, hirti frákastið og þrumaði í markið af stuttu færi. Frábært hjá þessum eldfljóta útherja. Hann hefði svo getað náð þrennu en markmaður Hull varði vel frá honum. Gestirnir náðu að minnka muninn undir lokin þegar Martin Hansen, sem stuttu áður hafði varið fast skot vel, braut klaufalega á einum leikmanni Hull. Dæmt var víti sem Tom Cairney skoraði úr. Liverpool vann 4:1 en Hull slapp vel með þá markatölu!

Liverpool lék frábærlega í leiknum og sigur liðsins hefði getað verið miklu stærri. Leikmenn liðsins hafa farið á kostum í undanförnum leikjum og í því eru margir efnilegir leikmenn sem vonandi eiga eftir að ná langt. John McMahon þjálfari liðsins virðist hafa náð góðum tökum á þessum ungu strákum og þeir hafa verið að blómstra á þessu keppnistímabili.  

Liverpool: Martin Hansen, Emmanuel Gomis Mendy, Stephen Darby, Steven Irwin, Daniel Ayala, Robbie Threlfall, Alex Kacaniklic (Chris Buchtmann 78. mín.), Nikola Saric (Guðlaugur Victor Pálsson 60. mín.), David Amoo, Nathan Eccleston og Daniel Pacheco. Ónotaðir varamenn: Dean Bouzanis, Nicolaj Kohlert og Jordy Brouwer.

Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: David Amoo. Hann var alltaf stórhættulegur, skoraði tvö mörk og lagði upp eitt.

Liverpool hefur nú sex stiga forystu á toppi deildarinnar. Manchester United er í öðru sæti en á einn leik til góða.
 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan