| Sf. Gutt

Bláu grannar lagðir

Varalið Liverpool er algerlega óstöðvandi um þessar mundir. Í kvöld vann það enn einn sigurinn þegar það lagði Bláliða Everton 1:0 á útivelli. Þetta var fimmti sigur Liverpool í röð. Liverpool er nú í efsta sæti deildarinnar.
 
John McMahon, þjálfari Liverpool, varð að stilla upp frekar ungu liði vegna meiðsla og fjarveru leikmanna út af landsleikjum. Eins eru nokkrir ungliðar með aðalliðinu í Frakklandi.

Það var ekkert gefið eftir frá upphafsflauti leiksins enda skiptir aldrei máli hvort það eru aðallið eða varalið Liverpool og Everton sem takast á. Liverpool ógnaði fyrst þegar Chris Mavinga átti fast skot í þverslá. Jose Baxter fékk besta færi Everton í hálfleiknum en hann skallaði yfir. Liverpool náði verðskuldað forystu á 45. mínútu. Nathan Ecclestone fékk þá réttilega dæmda vítaspyrnu. Hann tók hana sjálfur og skoraði með fastri spyrnu. 

Bláliðar komu ákveðnir til leiks eftir leikhlé en Nathan hélt markverði Everton við efnið með föstu skoti sem var varið. Leikmenn Everton léku mjög fast og tvívegis hefði mátt reka mann af velli. Gul spjöld voru þó látin duga í bæði skiptin. Everton fékk svo vítaspyrnu eftir að dæmd var hendi á Robbie Threlfall. Kieran Agard tók spyrnuna en skaut í stöng. Leikmenn Everton vildu síðar fá aðra vítaspyrnu eftir að þeir töldu að Chris Mavinga hefði brotið af sér en ekki var dæmt. Rauðliðar stóðust öll áhlaup Bláliða og fögnuðu vel og innilega í leikslok.

Liverpool: Gulacsi, Mendy (Kohlert 85. mín.), Threlfall, Guðlaugur Victor, Mavinga, Irwin, Saric (Flora 89. mín.), Amoo, Eccleston, Poloskei og Kacaniklic (Brouwer 74. mín.). Ónotaðir varamenn: Hansen og Weijl.
 
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv.: Chris Mavinga.

Síðustu sex dagarnir hafa sannarlega verið viðburðaríkir fyrir Nathan Ecclestone. Hann er búinn að spila tvo leiki með aðalliðinu og svo skoraði hann tvívegis í sigri Liverpool á Manchester United í Lancashire bikarnum. Það er gaman að sjá þennan efnilega 18 ára strák láta til sín taka og hver veit nema hann eigi eftir að ná langt.




TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan