| Sf. Gutt
Liverpool hefur nú tapað þremur leikjum í röð og staða liðsins í deildinni er slæm svo ekki sé fastar að orði kveðið. Jamie Carragher segir að liðsmenn muni snúa bökum saman.
"Það þýðir ekkert að tala um meistaratitilinn núna. Við erum bara að hugsa um næsta leik sem er í Mestaradeildinni gegn Lyon. Þá spilum fyrir framan okkar eigin stuðningsmenn á Anfield. Vonandi náum við að endurreisa sjálfstraust okkar í þeim leik áður en við tökum á móti Manchester United næsta sunnudag."
"Við munum snúa saman bökum og leggja hart að okkur á æfingum til að bæta það sem þarf. Við erum með gott lið, góða leikmenn og góðan framkvæmdastjóra. Við verðum því að hafa trú á okkur og halda okkar striki. Við erum nógu góðir og við höfum þá trú sem til þarf svo að við getum komast sem allra fyrst aftur á sigurbraut. Vonandi tekst okkar það á þriðjudaginn gegn Lyon."
Ekki veitir af tiltrú og kjarki í herbúðum Liverpool þessa dagana!
TIL BAKA
Við munum snúa við blaðinu!
Liverpool hefur nú tapað þremur leikjum í röð og staða liðsins í deildinni er slæm svo ekki sé fastar að orði kveðið. Jamie Carragher segir að liðsmenn muni snúa bökum saman."Það þýðir ekkert að tala um meistaratitilinn núna. Við erum bara að hugsa um næsta leik sem er í Mestaradeildinni gegn Lyon. Þá spilum fyrir framan okkar eigin stuðningsmenn á Anfield. Vonandi náum við að endurreisa sjálfstraust okkar í þeim leik áður en við tökum á móti Manchester United næsta sunnudag."
"Við munum snúa saman bökum og leggja hart að okkur á æfingum til að bæta það sem þarf. Við erum með gott lið, góða leikmenn og góðan framkvæmdastjóra. Við verðum því að hafa trú á okkur og halda okkar striki. Við erum nógu góðir og við höfum þá trú sem til þarf svo að við getum komast sem allra fyrst aftur á sigurbraut. Vonandi tekst okkar það á þriðjudaginn gegn Lyon."
Ekki veitir af tiltrú og kjarki í herbúðum Liverpool þessa dagana!
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

