| Sf. Gutt

Ian Rush hefur orðið

Ian Rush er kominn á svæðið! Reyndar ekki til Íslands en pistlar hans hafa lengi verið fastur liður á Liverpool.is og þeir verða hér á síðunni það sem eftir er á þessu keppnistímabili.
 
Meistarinn byrjar á því að fjalla um leik Liverpool og Chelsea. Hann gerir orð stjóra Chelsea, sem hann lét falla eftir leikinn, að umtalsefni og finnst að þar hafi Ítalinn talað verulega af sér.
 
Vörn Liverpool hefur legið undir ámæli á þessari leiktíð enda ekki verið jafn örugg og hún hefur verið síðustu árin. Ian segir þó að einn varnarmaður Liverpool hafi leikið sinn besta leik hingað til á leiktíðinni gegn Chelsea. Hann vonar að sá haldi áfram á þessari sömu braut. Ian endar svo á að spá í næsta deildarleik Liverpool. Pistillinn er hér tilbúinn í íslenskri þýðingu. Gjörið svo vel lesendur góðir:-)

 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan