| HI
Rafael Benítez er enn sannfærður um að liðið geti verið með í titilbaráttunni þrátt fyrir skrykkjótta byrjun á tímabilinu. Efasemdir hafa verið uppi um slíkt vegna þriggja tapleikja í deildinni það sem af er tímabilinu og að liðið sé þegar sex stigum frá toppsætinu. Benítez segir hins vegar að einvígið við Manchester United hafi haft bæði góð og slæm áhrif en gagnrýnin sé óréttmæt.
"Það erfiðasta við þetta tímabil er að standast væntingar. Á síðasta tímabili lukum við keppni með 86 stig og allir töluðu um að þetta væri tímabilið sem við færum alla leið. Þetta er löng keppni og ef við gerum mistök og gefumst upp of fljótt er þetta vonlaust. Aðalmálið er því að halda ró sinni og leggja áfram hart að sér."
Liverpool-liðið er hins vegar það næstmarkahæsta í deildinni með 22 mörk í átta leikjum. Liverpool hefur þar að auki jafnmörg stig nú og United hafði á sama tíma fyrir ári. Varnarleikurinn hefur hins vegar ekki verið nógu góður og hefur liðinu aðeins tvisvar tekist að halda hreinu í deildinni. Benítez telur hins vegar að tilkoma Daniels Agger og Alberto Aquilani, sem báðir eru að jafna sig eftir meiðsli, muni bæta hópinn mikið.
"Við erum að fá leikmenn úr meiðslum svo að við höfum tíma. Við þurfum að halda andlegu hliðinni góðri, skora mörk áfram og sjá svo til."
Benítez hefur einnig trú á að keppnin verði jafnari, og þar með að toppliðin tapi fleiri stigum en áður. "Ég held að það verði hörkubarátta á toppi deildarinnar. Chelsea er með gott lið en það má ekki gleyma því að þeir missa nokkra leikmenn á Afríkurkeppnina (í janúar) þannig að við skulum sjá til. Allir tala um Manchester United, Manchester City, Tottenham og Aston Villa, þannig að ég held að keppnin verði opin. Þess vegna eru skilaboð mín þau sömu - að við höldum áfram að vinna okkar vinnu vel."
TIL BAKA
Benítez rólegur yfir byrjuninni
Rafael Benítez er enn sannfærður um að liðið geti verið með í titilbaráttunni þrátt fyrir skrykkjótta byrjun á tímabilinu. Efasemdir hafa verið uppi um slíkt vegna þriggja tapleikja í deildinni það sem af er tímabilinu og að liðið sé þegar sex stigum frá toppsætinu. Benítez segir hins vegar að einvígið við Manchester United hafi haft bæði góð og slæm áhrif en gagnrýnin sé óréttmæt."Það erfiðasta við þetta tímabil er að standast væntingar. Á síðasta tímabili lukum við keppni með 86 stig og allir töluðu um að þetta væri tímabilið sem við færum alla leið. Þetta er löng keppni og ef við gerum mistök og gefumst upp of fljótt er þetta vonlaust. Aðalmálið er því að halda ró sinni og leggja áfram hart að sér."
Liverpool-liðið er hins vegar það næstmarkahæsta í deildinni með 22 mörk í átta leikjum. Liverpool hefur þar að auki jafnmörg stig nú og United hafði á sama tíma fyrir ári. Varnarleikurinn hefur hins vegar ekki verið nógu góður og hefur liðinu aðeins tvisvar tekist að halda hreinu í deildinni. Benítez telur hins vegar að tilkoma Daniels Agger og Alberto Aquilani, sem báðir eru að jafna sig eftir meiðsli, muni bæta hópinn mikið.
"Við erum að fá leikmenn úr meiðslum svo að við höfum tíma. Við þurfum að halda andlegu hliðinni góðri, skora mörk áfram og sjá svo til."
Benítez hefur einnig trú á að keppnin verði jafnari, og þar með að toppliðin tapi fleiri stigum en áður. "Ég held að það verði hörkubarátta á toppi deildarinnar. Chelsea er með gott lið en það má ekki gleyma því að þeir missa nokkra leikmenn á Afríkurkeppnina (í janúar) þannig að við skulum sjá til. Allir tala um Manchester United, Manchester City, Tottenham og Aston Villa, þannig að ég held að keppnin verði opin. Þess vegna eru skilaboð mín þau sömu - að við höldum áfram að vinna okkar vinnu vel."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

