| SSteinn
TIL BAKA
Undirskrift samninga við samstarfsaðila
Það er Liverpoolklúbbnum á Íslandi afar mikilvægt að eiga góða samstarfsaðila. Þeir spila stóran þátt í því að við getum veitt meðlimum okkar þá þjónustu sem við erum að veita í dag. 19. september var því stór og mikilvægur dagur hjá klúbbnum, þar sem skrifað var undir samninga við 4 samstarfsaðila í nýjum og glæsilegum húsakynnum Ölgerðarinnar. Þessir 4 aðilar sem skrifað var undir samninga við til 2ja ára hvern voru Ölgerðin, Players, VITA ferðir og Jóa Útherji.





Það er ekki alltaf fjöldi samninga sem skiptir máli, heldur umfang þeirra og mikilvægi. Samningur Ölgerðarinnar við Liverpoolklúbbinn á Íslandi, er sá stærsti og umfangsmesti sem klúbburinn hefur gert frá upphafi og erum við ákaflega stoltir að geta tilkynnt um undirskrift hans opinberlega.

Hér má sjá Gunnar B. Sigurgeirsson, framkvæmdastjóra markaðssviðs Ölgerðarinnar, handsala samninginn góða og þar með eru þeir orðnir stærsti samstarfsaðili Liverpoolklúbbsins á Íslandi.

Samningur handsalaður við Þórð Ágústsson eiganda heimavallar Liverpoolklúbbsins á Íslandi, Players í Kópavogi.

Lúðvík Arnarsson skrifaði undir samninginn við klúbbinn fyrir hönd VITA ferða.

Samningur kláraður við Valdimar P. Magnússon, eiganda Jóa Útherja.

Samningum fagnað af stjórn klúbbsins og fulltrúum samstarfsaðilanna.
Efri röð frá vinstri, Guðmundur Magnússon, Gunnar B. Sigurgeirsson (Ölgerðin), Valdimar P. Magnússon (Jói Útherji), Sigursteinn Brynjólfsson, Lúðvík Arnarsson (VITA ferðir), Sveinn Waage, Friðjón Hólmbertsson (Ölgerðin), Óttar Angantýsson (Ölgerðin), Þórður Ágústsson (Players).
Neðri röð frá vinstri: Viðar Valsson (Jói Útherji), Árni Freysteinsson, Bragi Brynjarsson, Héðinn Gunnarsson, Rúnar Geir Gunnarsson (Players).
Við hvetjum að sjálfsögðu félagsmenn okkar að beina viðskiptum sínum að þessum aðilum í framtíðinni.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

