| Sf. Gutt

Liverpool mætir Skyttunum

Liverpool mætir Skyttunum í næstu umferð Deildarbikarsins. Liverpool þarf að fara til Lundúna því Arsenal fékk heimaleik.
 
Liverpool fær þarna tækifæri til hefnda í keppninni en stuðningsmönnum liðsins svíður enn þegar Arsenal vann 6:3 á Anfield Road á keppnistímabilinu 2006/07. Það má þó ljóst vera að verkefni Liverpool verður erfitt á Emiratres leikvanginum.

Liverpool vann 1:0 Leeds United í síðustu umferð en Arsenal lagði W.B.A. 2:0. Liðin mætast í síðustu vikunni í október.

Hér er drátturinn í 4. umferð í heild sinni.

Blackburn Rovers v Peterborough United
Manchester City v Scunthorpe United
Tottenham Hotspur v Everton
Barnsley v Manchester United
Chelsea v Bolton Wanderers
Sunderland v Aston Villa
Arsenal v Liverpool
Portsmouth v Stoke City
 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan