| SSteinn
TIL BAKA
Minningarsíða um Valdimar Einarsson
Það er alltaf sorglegt þegar ungir menn falla frá og það tengir mann alltaf meira þegar viðkomandi hefur verið hluti af þessari góðu Liverpool fjölskyldu sem við öll erum partur af. Valdimar Einarsson er mikil hetja og hefur háð mikla baráttu við erfiðan sjúkdóm. Hann þurfti að lokum að játa sig sigraðan þann 14. september, aðeins 18 ára gamall. Hann var grjótharður stuðningsmaður Liverpool FC og partur af okkar íslenska Liverpoolklúbbi.
Sjúkdómurinn sem hann barðist við var CGD, sem er afar óvenjulegur sjúkdómur í ónæmiskerfinu. Við hvetjum fólk til að skoða þessa miklu baráttusögu hans í gegnum bloggsíðu móður hans. Einkunnarorð okkar Liverpool stuðningsmanna eiga aldrei betur við en einmitt á svona stundum, You'll Never Walk Alone, eða á okkar ástkæra ylhýra, þú gengur aldrei einn Valdimar. Bloggsíðuna er að finna hérna.
Til að heiðra minningu Valdimars, þá ætlum við að taka Liverpool.is niður á morgun á meðan útför stendur, eða klukkan 14:00.
Hvíl í friði Valdimar.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

