| Sf. Gutt

Liverpool lagði Manchester United

Varalið Liverpool gerði það gott í kvöld þegar það lagði Manchester United að velli 1:0 á heimavelli sínum. Það er nú alltaf gaman þegar svo vel tekst til!

Liverpool fékk óskabyrjun í leiknum því boltinn lá í marki United strax eftir fjórar mínútur. David Martin, markmaður Liverpool, sendi þá boltann hátt og langt fram úr aukaspyrnu. David Ngog komst fyrstur að boltanum inni á vítateignum og náði að skalla hann framhjá Ron-Robert Zieler markmanni United. Átta mínútum seinna gerðist Ítalinn Federico Macheda ágengur við mark Liverpool en David varði vel í markinu.

Liverpool átti næsta færi þegar David Amoo tók góða rispu fram áður en hann lagði boltann fyrir fætur Nathan Eccleston. Ungliðinn kom boltanum framhjá markmanni gestanna en varnarmaður bjargaði á línu. Það syrti á álinn hjá Liverpool á 34. mínútu þegar Damien Plessis var rekinn af velli fyrir gróft brot. Liverpool hélt þó sínu striki og Nathan kom sér í gott færi en skot hans var varið. Liverpool hélt forystu sinni þegar fyrri hálfleik lauk.

Liverpool hóf síðari hálfleikinn vel og varamaðurinn Jay Spearing komst í gott færi en varnarmaður bjargaði á síðustu stundu. Á 56. mínútu komst Federico einn í gegnum vörn Liverpool en David varði vel. Þegar leið á leikinn fór liðsmunurinn að segja til sín en gestirnir náðu þó ekki að færa sér hann í nyt. Tíu leikmenn Liverpool vörðust með kjafti og klóm og héldu fengnum hlut. Liverpool vann góðan sigur og ekki var hann síðri fyrir þá sök hverjir mótherjarnir voru!

Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliði Liverpool og lék aftarlega á miðjunni að venju. Hann fékk góða dóma fyrir leik sinn.
 
Liverpool: David Martin, Stephen Darby, Steven Irwin, Daniel Ayala, Chris Mavinga, Guðlaugur Victor Pálsson, David Ngog (Nikola Saric 77. mín.), David Amoo (Emmanuel Mendy 71. mín.), Nathan Eccleston, Damien Plessis og Alex Kacaniklic (Jay Spearing 39. mín.). Ónotaðir varamenn: Martin Hansen og Christopher Buchtmann.

Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: David Martin.

Helsta heimild: Liverpoolfc.tv.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan