| Grétar Magnússon
Jamie Carragher segir að efstu fjögur sætin í ensku Úrvalsdeildinni gætu orðið öðruvísi en venjulega á þessu tímabili. Liverpool, Manchester United, Chelsea og Arsenal hafa einokað þessi sæti undanfarin ár.
Carragher telur hinsvegar að þetta gæti breyst á þessu tímabili.
,,Ég held að Manchester City séu mjög sterkir - Tottenham líka. Aston Villa og Everton gætu verið líkleg einnig, þannig að ég held að þetta verði aðeins meira spennandi á þessu tímabili," sagði varafyrirliðinn.
,,Efstu fjögur sætin eru klárlega opin fyrir hverjum sem er en við viljum tryggja að við séum í baráttunni. Ég held að þar sem fleiri lið séu að bætast í hópinn megi gera ráð fyrir því að þau taki stig af hinum stóru liðunum líka."
Carragher var spurður að því hvort hann teldi að Manchester City gætu haldið áfram góðri spilamennsku sinni út tímabilið og sagði hann: ,,Já. Þeir eru með marga stórkostlega leikmenn, heimsklassaleikmenn og ég er viss um að þeir kaupi fleiri leikmenn í janúar, það er því ljóst að þeir munu gera harða atlögu að titlinum."
TIL BAKA
4 efstu sætin gætu orðið öðruvísi
Jamie Carragher segir að efstu fjögur sætin í ensku Úrvalsdeildinni gætu orðið öðruvísi en venjulega á þessu tímabili. Liverpool, Manchester United, Chelsea og Arsenal hafa einokað þessi sæti undanfarin ár.Carragher telur hinsvegar að þetta gæti breyst á þessu tímabili.
,,Ég held að Manchester City séu mjög sterkir - Tottenham líka. Aston Villa og Everton gætu verið líkleg einnig, þannig að ég held að þetta verði aðeins meira spennandi á þessu tímabili," sagði varafyrirliðinn.
,,Efstu fjögur sætin eru klárlega opin fyrir hverjum sem er en við viljum tryggja að við séum í baráttunni. Ég held að þar sem fleiri lið séu að bætast í hópinn megi gera ráð fyrir því að þau taki stig af hinum stóru liðunum líka."
Carragher var spurður að því hvort hann teldi að Manchester City gætu haldið áfram góðri spilamennsku sinni út tímabilið og sagði hann: ,,Já. Þeir eru með marga stórkostlega leikmenn, heimsklassaleikmenn og ég er viss um að þeir kaupi fleiri leikmenn í janúar, það er því ljóst að þeir munu gera harða atlögu að titlinum."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

