| SSteinn
TIL BAKA
Liverpool Open 2009 fór fram í gær
Liverpool Open golfmótið hefur legið niðri í nokkur ár. Stjórn klúbbsins ákvað í vor að reyna að setja slík mót á aftur og því var ákveðið að byrja smátt og athuga hvernig viðbrögðin yrðu. Þau urðu vægast sagt góð og fylltist strax í mótið. Liverpoolklúbburinn fór í samstarf með golfklúbbnum Oddi með framkvæmd mótsins og var ákveðið að halda það á Setbergsvelli. Það var flott að horfa yfir völlinn í góðu veðri og sjá rauðar treyjur út um allt, en 46 manns tóku þátt í mótinu að þessu sinni. Menn virtust skemmta sér vel og er nokkuð ljóst að framhald verður á þessum mótum og stefnt að enn stærra móti á næsta ári. Það var EAS sem gaf teiggjafirnar og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
Keppnin var hörð og voru það feðgar sem skipuðu sér í 2 af þrem efstu sætunum.


Keppnin var hörð og voru það feðgar sem skipuðu sér í 2 af þrem efstu sætunum.

Sigurvegari mótsins var Eggert Þorvarðarson á 39 punktum. Hann fékk í verðlaun gjafabréf upp á 30.000 krónur frá VITA upp í ferð á vegum klúbbsins.

Í öðru sæti varð svo Pétur Þórarinsson á 38 punktum og hlaut hann aðalliðstreyju að launum, sem gefin var af Jóa Útherja.


Í þriðja sætinu varð svo Geir Eggertsson á 38 punktum (lenti í þriðja þar sem Pétur spilaði betur á seinni 9) og fékk að launum gjafabréf fyrir gistingu á vegum hostel.is upp á 10.000 krónur.
Einnig voru veitt nándarverðlaun á tveim holum og svo var dregið út skorkort. Við viljum þakka Svavari Geir og golfklúbbnum Oddi fyrir fína framkvæmd á mótinu og eins þeim fjölmörgu þátttakendum í mótinu. Vonandi sjáum við alla aftur að ári og fleiri til, enda er stefnan sett á að halda Liverpool Open 2010 á sjálfum Urriðavelli.
Við tókum myndir af öllum keppendum mótsins og verða þær myndir ásamt fleirum settar inná vefinn síðar í vikunni.
Við tókum myndir af öllum keppendum mótsins og verða þær myndir ásamt fleirum settar inná vefinn síðar í vikunni.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

