| Ólafur Haukur Tómasson
Í gær var dregið í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu við glæsilega hátíð í Mónakko. Mikið var um áhugaverðadrætti en meðal annars munu Real Madrid og AC Milan etja kappi í einum riðlinum og einnig munu Barcelona og Inter Milan mætast í öðrum riðli.
Riðillinn sem Liverpool dróst í er mjög áhugaverður og má búast við hörku leikjum enda öflugir mótherjar. Ásamt Liverpool er franska liðið Lyon, ítalska liðið Fiorentina og ungverska liðið Debreceni. Rafael Benítez gaf álit sitt á drættinum við opinberu heimasíðu félagsins í gærkvöldi:
"Maður veit það að í Meistaradeildinni þá mun maður alltaf eiga erfiða leiki og erfið lið að spila við. Lyon vann kanski ekki deildina á síðustu leiktíð en þeir hafa unnið hana svo mörg ár í röð svo við vitum að þeir hafa marga góða leikmenn sem spila góðan fótbolta.
Fiorentina er sögufrægt félag í indælli borg. Ég veit það af eigin reynslu að þeir eru með frábæra stuðningsmenn því ég eyddi nokkrum tíma þarna þegar Claudio Ranieri var við stjórnvölin þar.
Við höfum reynslu af ungverskum fótbolta vegna sambands okkar við MTK svo ef Debreceni vann deildina þá vitum við að það þýðir að þeir séu með gott lið.
Mikilvægast er að ferðalögin eru ekki slæm, við þurfum ekki að ferðast langt í neina af þessum leikjum. Okkur hlakkar bara til að hefja keppnina að nýju." sagði Rafael Benítez.
Liverpool mun hefja leik í Meistaradeildinni gegn Debreceni þann 16. september næst komandi á Anfield Road.
TIL BAKA
Álit Rafa á riðli Liverpool
Í gær var dregið í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu við glæsilega hátíð í Mónakko. Mikið var um áhugaverðadrætti en meðal annars munu Real Madrid og AC Milan etja kappi í einum riðlinum og einnig munu Barcelona og Inter Milan mætast í öðrum riðli.Riðillinn sem Liverpool dróst í er mjög áhugaverður og má búast við hörku leikjum enda öflugir mótherjar. Ásamt Liverpool er franska liðið Lyon, ítalska liðið Fiorentina og ungverska liðið Debreceni. Rafael Benítez gaf álit sitt á drættinum við opinberu heimasíðu félagsins í gærkvöldi:
"Maður veit það að í Meistaradeildinni þá mun maður alltaf eiga erfiða leiki og erfið lið að spila við. Lyon vann kanski ekki deildina á síðustu leiktíð en þeir hafa unnið hana svo mörg ár í röð svo við vitum að þeir hafa marga góða leikmenn sem spila góðan fótbolta.
Fiorentina er sögufrægt félag í indælli borg. Ég veit það af eigin reynslu að þeir eru með frábæra stuðningsmenn því ég eyddi nokkrum tíma þarna þegar Claudio Ranieri var við stjórnvölin þar.
Við höfum reynslu af ungverskum fótbolta vegna sambands okkar við MTK svo ef Debreceni vann deildina þá vitum við að það þýðir að þeir séu með gott lið.
Mikilvægast er að ferðalögin eru ekki slæm, við þurfum ekki að ferðast langt í neina af þessum leikjum. Okkur hlakkar bara til að hefja keppnina að nýju." sagði Rafael Benítez.
Liverpool mun hefja leik í Meistaradeildinni gegn Debreceni þann 16. september næst komandi á Anfield Road.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

