| Ólafur Haukur Tómasson
TIL BAKA
Yfirmenn Akademíunnar tjá sig um breytingarnar
Það hafa miklar breytingar verið á unglingastarfi Liverpool á síðustu mánuðum og hafa orðið miklar breytingar á starfsliði Akademíunnar og miklu púðri hefur verið eytt í að byggja upp eitt öflugasta unglingastarf Evrópu. Meðal þeirra sem yfirgáfu stöður sínar í Akademíunni var Hughie McAuley og Malcolm Elias.
Margir starfsmenn hafa verið ráðnir í þjálfara og yfirmannsstöður Akademíunnar en meðal þeirra sem hafa verið ráðnir eru Jose Segura sem tekur við starf framkvæmdarstjóra tæknideildar Akademíunnar, Frank McParland sem er framkvæmdarstjóri Akademíunnar, Rodolfo Borrell sem er knattspyrnustjóri unglingaliðsins og að sjálfsögðu tók Kenny Dalglish við starfi í Akademíunni þar sem hlutverk hans er að finna sem efnilegastu leikmenina á svæðinu í kringum Liverpool.
Hér fáum við smá innsýn í þær breytingar sem hafa orðið á Akademíunni og heyrum álit nokkra aðalstarfsmanna hennar.
Nýráðinn framkvæmdarstjóri Akademíunnar, Frank McParland, er ekki ókunnugur því að starfa hjá Liverpool en áður var hann yfirútsendari félagsins. Hann tók við starfi sem framkvæmdarstjóri Bolton þegar Sammy Lee var þar við stjórnvölin en hann ásamt Sammy var sagt upp, nú hefur hann hins vegar verið ráðinn aftur til Liverpool líkt og Sammy. Hér greinir hann frá þeim stefnum og breytingum sem eru að gerast hjá Akademíunni:
"Það hefur mikið verið í umræðunni undanfarið um hver framtíðarstefna Akademíunnar sé. Rafa Benítez bað mig um að stýra endurskoðun á Akademíunni fyrr á þessu ári. Niðurstaðan úr endurskoðuninni hefur verið samþykkt af Rafa og tækniliði hans og nú verða breytingar samkvæmt minni stefnu. Ég mun halda áfram að gefa skýrslur beint til Rafa.
Það munu klárlega vera breytingar á andlegum hliðum Akademíunnar og á því hvernig við högum hlutunum hér, en það er efst í huga okkar að við verðum að skapa sem best umhverfi fyrir þróun ungra leikmanna okkar í framtíðinni. Það hefur verið ákveðið að breyta merkingum Akademíunnar og þar á meðal verður breytt merkingunni sem er utan á húsinu. Akademían er mikilvægur hluti félagsins og nú verður það merkt eins og það ætti að vera. Það hefur gífurlega mikið hlutverk að leika í framtíðarárangri hjá Liverpool Football Club og þessi breyting endurspeglar það.
Það verður líka meira samband á milli Melwood og Akademíunnar, og hefur Rafa sjálfur verið veitt þeirri leið sem við viljum beina Akademíunni mikinn stuðning. Við munum rannsaka alla þá hluta sem tengjast Akademíunni og við munum leita eftir því að bæta okkur, þá ekki bara hvað varðar þjálfara heldur einnig starfsgreinum eins og læknisaðstöðu, sjúkraliða og æfingaaðstöður. Eitt stórt skref í þeim bætingum er að það mun vera ráðinn yfirmaður íþróttavísinda sem mun sniða sérstök æfingaprógröm fyrir ákveðna aldursflokka sem munu hjálpa þeim að taka næstu skref á skemmri tíma.
Við munum einnig vega og meta aðstöðuna eins og hún er í dag og uppfæra það sem nauðsynlega þyrfti á bætingu að halda. Ég kom áðan inn á breytingar í starfsliðinu og fyrsta viðbótin á því svæði var Jose Segura sem tók við starfi yfirmanns tæknideildar Akademíunnar í júní mánuði.
Jose kemur með mikla reynslu og hugmyndir eftir að hafa starfað í öðrum löndum og það er mikilvægt að stefna að því að blanda saman því besta sem erlendar deildir hafa fram á að færa og því sem ég kýs að kalla enskt hugarfar. Það er samblanda af ástríðu, ákveðni og þrá. Við viljum leikmenn sem eru æstir í að fá að spila fótbolta og ná árangri hjá Liverpool. Við verðum að endurvekja þá kenningu sem snýst um að senda og hreyfa sig fljótt. Við verðum að þróa sigurhugarfarið í alla okkar leikmenn."
Jose Segura tekur við starfi tæknilegs framkvæmdarstjóra Akademíunnar eins og fram kom áðan. Hann starfaði í unglingastarfi Barcelona í nokkur ár og hélt þaðan til Grikklands þar sem hann var aðstoðarknattspyrnustjóri hjá AEK áður en hann tók við slíku starfi hjá Olympiakos og varð svo seinna meir knattspyrnustjóri liðsins eftir að fyrirmanni hans hafði verið sagt upp, þar vann hann tvo titla á einu tímabili en ákvað að segja upp og tók við starfi hjá Liverpool. Hér er viðtal sem opinber heimasíða Liverpool FC tók við hann.
Var það auðveld ákvörðun fyrir því að koma og taka þátt í unglingastarfi Liverpool? Þú hafðir náð frábærum árangri sem aðalliðsþjálfari í Grikklandi ekki satt?
Jú, þetta var auðvelt því ég talaði við Rafa og mér líkaði við þá sýn sem hann hefur á Akademíunni. Ég starfaði með Rodolfo í langan tíma hjá Barcelona og okkur hlakkar til að takast á við nýja áskorun. Vonandi mun okkur takast að hjálpa ungum leikmönnum að komast í aðalliðið með tímanum. Það er auðvitað mikill munur á því að vinna með yngri leikmönnum heldur en að meðhöndla aðalliðsleikmenn en að mínu mati er þetta áhugavert starf og ég er einbeittur í að gera vel í því starfi.
Hvað vonastu eftir að áorka hér í Akademíunni?
Fyrsta málið er að finna bestu mögulegu leikmennina svo við getum unnið með þeim og hjálpað þeim að taka skrefin í áttina að því að komast í aðalliðið. Við viljum hafa sama hugarfar hjá öllum þjálfurunum svo leikmennirnir séu vanir því að spila á sömu kerfum og stíl líkt og aðalliðið gerir. Við viljum að leikmennirnir sýni framför á hverju ári og vonumst við til að við fáum góða enska leikmenn í gegnum unglingastarfið.
Hvað finnst þér um nýju aðstöðu Akademíunnar? Þekktiru þá Kenny Dalglish og Frank McParland fyrir?
Eins og ég sagði áður þá hef ég starfað með Rodolfo í mörg ár og við erum bjartsýnir á að við getum náð árangri hér. Ég er að kynnast Kenny. Hann er goðsögn, ekki bara í Liverpool heldur í fótboltaheiminum almennt. Mér hlakkar einnig til að vinna með Frankie. Hann er frábær persóna og hefur strax sýnt að hann hefur mikla trú á okkar vinnu.
Hvað myndir þú telja að þyrfti til að þú gætir litið á þetta sem árangursríkt fyrsta tímabil hjá Akademíunni?
Ég hef mikla trú á Rodolfo. Ég veit að við munum leggja hart að okkur og gera það besta leikmennina. Í fótboltanum þá lítur fólk oftast á framfarir og árangur með sigrum. Ég tel þetta vera mikilvægt en að mínu viti þá er það mikilvægasta að þeir nái framförum. Ef við horfum fimm ár fram í tímann þá viljum við að þessir leikmenn verði aðalliðsleikmenn hjá Liverpool Football Club. Þetta snýst ekki um skammtíma árangur, við viljum ganga í skugga um að Liverpool eigi bjarta framtíð. Maður verður að gera upp á milli þess hvort að vinna unglingaliðameistaratitilinn sé mikilvægara en að koma einum leikmanni upp í aðalliðið. Ég vil gera þetta bæði en við vitum að aðalliðið hefur forgang.
Rodolfo Borrell var ráðinn sem knattspyrnustjóri unglingaliðsins fyrr í sumar. Hann hafði áður starfað sem þjálfari í unglingaliðum Barcelona og vann hann með mönnum eins og Carlos Puyol, Gerard Pique, Xavi, Andres Iniesta og Lionel Messi þegar þeir voru á þeirra yngri árum. Hér er viðtal sem opinber heimasíða Liverpool FC tók við hann.
Þú hefur náð áhugaverðri byrjun á Englandi með því að vinna tvo titla á undirbúningstímabilinu. Hversu ánægður ertu með svona snöggan árangur?
Það voru nokkur stórlið víðsvegar frá Evrópu í báðum keppnunum svo það var góður árangur að vinna báðar. Ég hef aðeins verið hér í rúman mánuði en þetta er góð byrjun fyrri mig, félagið og alla hjá Akademíunni. Svona ferðir eru líka alltaf góðar til að kynnast leikmönnunum.
Hvernig fannst þér u-18 ára liðið líta út svona við fyrstu sín?
Þeir eru samkeppnishæfir, með mikla hæfileika og vel agaðir. Ég verð samt að viðurkenna að ég var ögn hissa á því hvernig okkur tókst til á þessum mótum. Keppnirnar voru fyrir leikmenn fædda 1991 og við vorum með þó nokkra leikmenn sem eru fæddir 1992 og 1993. Við vorum töluvert yngri en flest þessara liða sem voru einnig mjög, mjög góð en okkur tókst engu að síður að sigra þau. Þetta boðar aðeins gott fyrir framtíðina.
Hvernig nýtist það leikmönnunum að mæta nokkrum efnilegustu leikmönnum álfunnar?
Að leika gegn svona liðum gefur manni betri þekkingu á almennum fótbolta. Þeir læra að mæta andstæðingum með ólíkan stíl og allt annað hugarfar. Þetta mun hjálpa þeim að þroskast sem leikmenn.
Hvert er aðalmarkmið þitt sem stjóri unglingaliðsins?
Fyrst og fremst þá kem ég ekki hingað og hugsa um spænska eða erlenda leikmenn. Ég kem frá félagi sem sannar það að vinna vel með heimamönnum getur skilað árangri. Skoðið aðalliðið hjá Barcelona. Þar eru Xavi, Iniesta, Puyol, Victor Valdes, Gerard Pique og jafnvel Lionel Messi, þó svo að hann sé frá Argentínu þá kom hann til félagsins á unga aldri. Ég var í rauninni fyrsti þjálfarinn hans hjá Barcelona.
Þú segir að þú munir einbeita þér að uppöldum strákum. Þýðir það að þú stefnir að því að koma í gegn næsta Steven Gerrard eða Jamie Carragher?
Ég tel að bestu leikmennirnir fyrir Liverpool eru uppaldir enskir leikmenn. Maður sér það að slíkir leikmenn finna vel fyrir lit félagsins. Liverpool er stórt félag og það er mikilvægt að við vinnum allir eins, allt frá Akademíunni og til aðalliðsins á Melwood. Ef við gerum þetta þá ætti það að gera leikmönnunum auðveldara fyrir að ná árangri með aðalliðinu. Það er okkar hugmynd.
Hvað var það við Liverpool sem tældi þig að starfinu?
Þegar þú kemur frá öðrum stað og kemur til Liverpool þá tekurðu eftir því að fótboltinn hér er öðruvísi. Andrúmsloftið í kringum félagið er einstakt. Ég ferðaðist með neðanjarðarlest í Barcelona og gekk framhjá Sagrada Familia daglega. Þegar þetta er í þinni heimaborg og þú sérð þetta daglega þá kemur að því að þú bara tekur ekki eftir þessu lengur, þó svo að fólk komi víðsvegar að úr heiminum að skoða það. Það er eins með Liverpool. Ef þú ert uppalinn í borginni þá er ára félagsins eitthvað sem þú kannski bara venst en fyrir utanaðkomandi þá er þetta einstakt. Þú getur horft á þetta í sjónvarpinu en það er ekkert sem jafnast á við það að upplifa Liverpool FC í eigin persónu. Það er eitthvað við félagið sem er ómögulegt að finna annars staðar.
Hvernig kom það til að þeir var boðið starf hjá Liverpool?
Starf mitt sem útsendari senti mig út um allan heim, allt frá Evrópumóti u17 ára liða í Þýskalandi og til Fílabeinsstandrarinnar í Afríku. Þetta var þegar ég var erlendis þegar ég fyrst heyrði af áhuga Liverpool. Ég sat einn að snæða á veitingastað þegar síminn minn hringdi. Ég svaraði og rödd sagði: "Halló, ég er Rafael Benítez frá Liverpool Football Club. Veistu hver ég er?" Að sjálfsögðu vissi ég það. Hann útskýrði fyrir mér hugmynd sína með Akademíuna og vissi allt um starfsferil minn. Hann hafði þá talað við Pep Segura sem var mikilvægur þegar ég var hjá Barcelona. Ég snéri aftur til Spánar og talaði við stjórann minn og útskýrði fyrir honum að mér hefði boðist ótrúlegt tækifæri. Ég var beðinn um að bíða til loka tímabilsins en þeir gátu ekki boðið mér starf fyrir ofan u17 ára liðið svo ég sagði þeim að ég færi til Liverpool.
Ertu bjartsýnn á að þú munir framleiða leikmenn sem verða nægilega góðir fyrir aðalliðið á næstu árum?
Það er ástæðan fyrir því að ég er hér. Ef ég hefði ekki trú á þessu þá hefði ég ekki komið. Við vitum að við verðum að bæta margt hjá okkur en þetta er okkar stefna.
Hugmyndin með unglingastarfinu er að gera leikmennina klára fyrir varaliðið og svo loks aðalliðið. Hversu bjartsýnn ertu á að einhverjir leikmenn þínir verði klárir fyrir Melwood að ári liðnu?
Það besta fyrir mig væri að sjá sem flesta úr unglingaliðinu mínu færða yfir í varaliðið. Hvort sem það muni gerast eða ekki mun aðeins tíminn leiða í ljós. Við vinnum með John McMahon og erum að fara sömu leið og Rafa. Ég man eftir því þegar aðalliðið ferðaðist til Singapore þá hringdi Rafa í mig. Ég var hissa á því að jafnvel þó hann var einbeittur með aðalliðið og á fullu í Asíu þá var hann engu að síður að hugsa um unglingaliðið. Það getur eingöngu verið gott fyrir félagið að hafa stjóra sem er jafn tryggur framtíð Liverpool líkt og Rafa er.
Það er greinilegt að mikill metnaður er í Akademíunni og mikil vinna hefur verið lögð í að bæta hana á þeim svæðum sem þarf að bæta. Liðið fór vel á stað yfir sumarið og sigraði tvö mót eins og sagt var frá áðan, en deildin fór í gang um helgina og liðið byrjaði af krafti og lagði Fulham með þremur mörkum gegn engu.
Margir starfsmenn hafa verið ráðnir í þjálfara og yfirmannsstöður Akademíunnar en meðal þeirra sem hafa verið ráðnir eru Jose Segura sem tekur við starf framkvæmdarstjóra tæknideildar Akademíunnar, Frank McParland sem er framkvæmdarstjóri Akademíunnar, Rodolfo Borrell sem er knattspyrnustjóri unglingaliðsins og að sjálfsögðu tók Kenny Dalglish við starfi í Akademíunni þar sem hlutverk hans er að finna sem efnilegastu leikmenina á svæðinu í kringum Liverpool.
Hér fáum við smá innsýn í þær breytingar sem hafa orðið á Akademíunni og heyrum álit nokkra aðalstarfsmanna hennar.
Nýráðinn framkvæmdarstjóri Akademíunnar, Frank McParland, er ekki ókunnugur því að starfa hjá Liverpool en áður var hann yfirútsendari félagsins. Hann tók við starfi sem framkvæmdarstjóri Bolton þegar Sammy Lee var þar við stjórnvölin en hann ásamt Sammy var sagt upp, nú hefur hann hins vegar verið ráðinn aftur til Liverpool líkt og Sammy. Hér greinir hann frá þeim stefnum og breytingum sem eru að gerast hjá Akademíunni:"Það hefur mikið verið í umræðunni undanfarið um hver framtíðarstefna Akademíunnar sé. Rafa Benítez bað mig um að stýra endurskoðun á Akademíunni fyrr á þessu ári. Niðurstaðan úr endurskoðuninni hefur verið samþykkt af Rafa og tækniliði hans og nú verða breytingar samkvæmt minni stefnu. Ég mun halda áfram að gefa skýrslur beint til Rafa.
Það munu klárlega vera breytingar á andlegum hliðum Akademíunnar og á því hvernig við högum hlutunum hér, en það er efst í huga okkar að við verðum að skapa sem best umhverfi fyrir þróun ungra leikmanna okkar í framtíðinni. Það hefur verið ákveðið að breyta merkingum Akademíunnar og þar á meðal verður breytt merkingunni sem er utan á húsinu. Akademían er mikilvægur hluti félagsins og nú verður það merkt eins og það ætti að vera. Það hefur gífurlega mikið hlutverk að leika í framtíðarárangri hjá Liverpool Football Club og þessi breyting endurspeglar það.
Það verður líka meira samband á milli Melwood og Akademíunnar, og hefur Rafa sjálfur verið veitt þeirri leið sem við viljum beina Akademíunni mikinn stuðning. Við munum rannsaka alla þá hluta sem tengjast Akademíunni og við munum leita eftir því að bæta okkur, þá ekki bara hvað varðar þjálfara heldur einnig starfsgreinum eins og læknisaðstöðu, sjúkraliða og æfingaaðstöður. Eitt stórt skref í þeim bætingum er að það mun vera ráðinn yfirmaður íþróttavísinda sem mun sniða sérstök æfingaprógröm fyrir ákveðna aldursflokka sem munu hjálpa þeim að taka næstu skref á skemmri tíma.
Við munum einnig vega og meta aðstöðuna eins og hún er í dag og uppfæra það sem nauðsynlega þyrfti á bætingu að halda. Ég kom áðan inn á breytingar í starfsliðinu og fyrsta viðbótin á því svæði var Jose Segura sem tók við starfi yfirmanns tæknideildar Akademíunnar í júní mánuði.
Jose kemur með mikla reynslu og hugmyndir eftir að hafa starfað í öðrum löndum og það er mikilvægt að stefna að því að blanda saman því besta sem erlendar deildir hafa fram á að færa og því sem ég kýs að kalla enskt hugarfar. Það er samblanda af ástríðu, ákveðni og þrá. Við viljum leikmenn sem eru æstir í að fá að spila fótbolta og ná árangri hjá Liverpool. Við verðum að endurvekja þá kenningu sem snýst um að senda og hreyfa sig fljótt. Við verðum að þróa sigurhugarfarið í alla okkar leikmenn."
Jose Segura tekur við starfi tæknilegs framkvæmdarstjóra Akademíunnar eins og fram kom áðan. Hann starfaði í unglingastarfi Barcelona í nokkur ár og hélt þaðan til Grikklands þar sem hann var aðstoðarknattspyrnustjóri hjá AEK áður en hann tók við slíku starfi hjá Olympiakos og varð svo seinna meir knattspyrnustjóri liðsins eftir að fyrirmanni hans hafði verið sagt upp, þar vann hann tvo titla á einu tímabili en ákvað að segja upp og tók við starfi hjá Liverpool. Hér er viðtal sem opinber heimasíða Liverpool FC tók við hann.Var það auðveld ákvörðun fyrir því að koma og taka þátt í unglingastarfi Liverpool? Þú hafðir náð frábærum árangri sem aðalliðsþjálfari í Grikklandi ekki satt?
Jú, þetta var auðvelt því ég talaði við Rafa og mér líkaði við þá sýn sem hann hefur á Akademíunni. Ég starfaði með Rodolfo í langan tíma hjá Barcelona og okkur hlakkar til að takast á við nýja áskorun. Vonandi mun okkur takast að hjálpa ungum leikmönnum að komast í aðalliðið með tímanum. Það er auðvitað mikill munur á því að vinna með yngri leikmönnum heldur en að meðhöndla aðalliðsleikmenn en að mínu mati er þetta áhugavert starf og ég er einbeittur í að gera vel í því starfi.
Hvað vonastu eftir að áorka hér í Akademíunni?
Fyrsta málið er að finna bestu mögulegu leikmennina svo við getum unnið með þeim og hjálpað þeim að taka skrefin í áttina að því að komast í aðalliðið. Við viljum hafa sama hugarfar hjá öllum þjálfurunum svo leikmennirnir séu vanir því að spila á sömu kerfum og stíl líkt og aðalliðið gerir. Við viljum að leikmennirnir sýni framför á hverju ári og vonumst við til að við fáum góða enska leikmenn í gegnum unglingastarfið.
Hvað finnst þér um nýju aðstöðu Akademíunnar? Þekktiru þá Kenny Dalglish og Frank McParland fyrir?
Eins og ég sagði áður þá hef ég starfað með Rodolfo í mörg ár og við erum bjartsýnir á að við getum náð árangri hér. Ég er að kynnast Kenny. Hann er goðsögn, ekki bara í Liverpool heldur í fótboltaheiminum almennt. Mér hlakkar einnig til að vinna með Frankie. Hann er frábær persóna og hefur strax sýnt að hann hefur mikla trú á okkar vinnu.
Hvað myndir þú telja að þyrfti til að þú gætir litið á þetta sem árangursríkt fyrsta tímabil hjá Akademíunni?
Ég hef mikla trú á Rodolfo. Ég veit að við munum leggja hart að okkur og gera það besta leikmennina. Í fótboltanum þá lítur fólk oftast á framfarir og árangur með sigrum. Ég tel þetta vera mikilvægt en að mínu viti þá er það mikilvægasta að þeir nái framförum. Ef við horfum fimm ár fram í tímann þá viljum við að þessir leikmenn verði aðalliðsleikmenn hjá Liverpool Football Club. Þetta snýst ekki um skammtíma árangur, við viljum ganga í skugga um að Liverpool eigi bjarta framtíð. Maður verður að gera upp á milli þess hvort að vinna unglingaliðameistaratitilinn sé mikilvægara en að koma einum leikmanni upp í aðalliðið. Ég vil gera þetta bæði en við vitum að aðalliðið hefur forgang.
Rodolfo Borrell var ráðinn sem knattspyrnustjóri unglingaliðsins fyrr í sumar. Hann hafði áður starfað sem þjálfari í unglingaliðum Barcelona og vann hann með mönnum eins og Carlos Puyol, Gerard Pique, Xavi, Andres Iniesta og Lionel Messi þegar þeir voru á þeirra yngri árum. Hér er viðtal sem opinber heimasíða Liverpool FC tók við hann.
Þú hefur náð áhugaverðri byrjun á Englandi með því að vinna tvo titla á undirbúningstímabilinu. Hversu ánægður ertu með svona snöggan árangur?
Það voru nokkur stórlið víðsvegar frá Evrópu í báðum keppnunum svo það var góður árangur að vinna báðar. Ég hef aðeins verið hér í rúman mánuði en þetta er góð byrjun fyrri mig, félagið og alla hjá Akademíunni. Svona ferðir eru líka alltaf góðar til að kynnast leikmönnunum.
Hvernig fannst þér u-18 ára liðið líta út svona við fyrstu sín?
Þeir eru samkeppnishæfir, með mikla hæfileika og vel agaðir. Ég verð samt að viðurkenna að ég var ögn hissa á því hvernig okkur tókst til á þessum mótum. Keppnirnar voru fyrir leikmenn fædda 1991 og við vorum með þó nokkra leikmenn sem eru fæddir 1992 og 1993. Við vorum töluvert yngri en flest þessara liða sem voru einnig mjög, mjög góð en okkur tókst engu að síður að sigra þau. Þetta boðar aðeins gott fyrir framtíðina.
Hvernig nýtist það leikmönnunum að mæta nokkrum efnilegustu leikmönnum álfunnar?Að leika gegn svona liðum gefur manni betri þekkingu á almennum fótbolta. Þeir læra að mæta andstæðingum með ólíkan stíl og allt annað hugarfar. Þetta mun hjálpa þeim að þroskast sem leikmenn.
Hvert er aðalmarkmið þitt sem stjóri unglingaliðsins?
Fyrst og fremst þá kem ég ekki hingað og hugsa um spænska eða erlenda leikmenn. Ég kem frá félagi sem sannar það að vinna vel með heimamönnum getur skilað árangri. Skoðið aðalliðið hjá Barcelona. Þar eru Xavi, Iniesta, Puyol, Victor Valdes, Gerard Pique og jafnvel Lionel Messi, þó svo að hann sé frá Argentínu þá kom hann til félagsins á unga aldri. Ég var í rauninni fyrsti þjálfarinn hans hjá Barcelona.
Þú segir að þú munir einbeita þér að uppöldum strákum. Þýðir það að þú stefnir að því að koma í gegn næsta Steven Gerrard eða Jamie Carragher?
Ég tel að bestu leikmennirnir fyrir Liverpool eru uppaldir enskir leikmenn. Maður sér það að slíkir leikmenn finna vel fyrir lit félagsins. Liverpool er stórt félag og það er mikilvægt að við vinnum allir eins, allt frá Akademíunni og til aðalliðsins á Melwood. Ef við gerum þetta þá ætti það að gera leikmönnunum auðveldara fyrir að ná árangri með aðalliðinu. Það er okkar hugmynd.
Hvað var það við Liverpool sem tældi þig að starfinu?
Þegar þú kemur frá öðrum stað og kemur til Liverpool þá tekurðu eftir því að fótboltinn hér er öðruvísi. Andrúmsloftið í kringum félagið er einstakt. Ég ferðaðist með neðanjarðarlest í Barcelona og gekk framhjá Sagrada Familia daglega. Þegar þetta er í þinni heimaborg og þú sérð þetta daglega þá kemur að því að þú bara tekur ekki eftir þessu lengur, þó svo að fólk komi víðsvegar að úr heiminum að skoða það. Það er eins með Liverpool. Ef þú ert uppalinn í borginni þá er ára félagsins eitthvað sem þú kannski bara venst en fyrir utanaðkomandi þá er þetta einstakt. Þú getur horft á þetta í sjónvarpinu en það er ekkert sem jafnast á við það að upplifa Liverpool FC í eigin persónu. Það er eitthvað við félagið sem er ómögulegt að finna annars staðar.
Hvernig kom það til að þeir var boðið starf hjá Liverpool?
Starf mitt sem útsendari senti mig út um allan heim, allt frá Evrópumóti u17 ára liða í Þýskalandi og til Fílabeinsstandrarinnar í Afríku. Þetta var þegar ég var erlendis þegar ég fyrst heyrði af áhuga Liverpool. Ég sat einn að snæða á veitingastað þegar síminn minn hringdi. Ég svaraði og rödd sagði: "Halló, ég er Rafael Benítez frá Liverpool Football Club. Veistu hver ég er?" Að sjálfsögðu vissi ég það. Hann útskýrði fyrir mér hugmynd sína með Akademíuna og vissi allt um starfsferil minn. Hann hafði þá talað við Pep Segura sem var mikilvægur þegar ég var hjá Barcelona. Ég snéri aftur til Spánar og talaði við stjórann minn og útskýrði fyrir honum að mér hefði boðist ótrúlegt tækifæri. Ég var beðinn um að bíða til loka tímabilsins en þeir gátu ekki boðið mér starf fyrir ofan u17 ára liðið svo ég sagði þeim að ég færi til Liverpool.
Ertu bjartsýnn á að þú munir framleiða leikmenn sem verða nægilega góðir fyrir aðalliðið á næstu árum?
Það er ástæðan fyrir því að ég er hér. Ef ég hefði ekki trú á þessu þá hefði ég ekki komið. Við vitum að við verðum að bæta margt hjá okkur en þetta er okkar stefna.
Hugmyndin með unglingastarfinu er að gera leikmennina klára fyrir varaliðið og svo loks aðalliðið. Hversu bjartsýnn ertu á að einhverjir leikmenn þínir verði klárir fyrir Melwood að ári liðnu?
Það besta fyrir mig væri að sjá sem flesta úr unglingaliðinu mínu færða yfir í varaliðið. Hvort sem það muni gerast eða ekki mun aðeins tíminn leiða í ljós. Við vinnum með John McMahon og erum að fara sömu leið og Rafa. Ég man eftir því þegar aðalliðið ferðaðist til Singapore þá hringdi Rafa í mig. Ég var hissa á því að jafnvel þó hann var einbeittur með aðalliðið og á fullu í Asíu þá var hann engu að síður að hugsa um unglingaliðið. Það getur eingöngu verið gott fyrir félagið að hafa stjóra sem er jafn tryggur framtíð Liverpool líkt og Rafa er.
Það er greinilegt að mikill metnaður er í Akademíunni og mikil vinna hefur verið lögð í að bæta hana á þeim svæðum sem þarf að bæta. Liðið fór vel á stað yfir sumarið og sigraði tvö mót eins og sagt var frá áðan, en deildin fór í gang um helgina og liðið byrjaði af krafti og lagði Fulham með þremur mörkum gegn engu.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

