| HI
Liverpool hefur staðfest að búið sé að semja við gríska varnarmanninn Sotirios Kyrgiakos. Hann á aðeins eftir að standast læknisskoðun og er búist við að hann geri það fyrir helgi. Talið er að kaupverðið sé um 2,5 milljónir punda.
Á vefsíðu AEK birtist eftirfarandi yfirlýsing. "Við virðum ákvörðun hans því við höfum oft lýst því yfir að við viljum ekki standa í vegi fyrir þeim leikmanni sem vill fara frá félaginu. Skiptir þá engu hver ástæðan er. En brottför Sotirios Kyrgiakos gæti ekki hafa komið á verri tíma fyrir félagið."
Eins og við greindum frá í gær voru þá allar líkur taldar á að kappinn væri á leið til félagsins. Ljóst var að þörfin væri töluverð, enda mikil meiðsli hjá miðvörðum liðsins. Til að mynda varð Benítez að tefla fram hinum unga Daniel Ayala í leiknum gegn Stoke í kvöld.
Rafael Benítez staðfesti eftir þann leik að Kyrgiakos, sem nú leikur með AEK Aþenu, væri að koma. "Við erum nánast búnir að ganga frá samningnum með fyrirvara um að hann standist læknisskoðun. Hann er leikmaður með reynslu sem vonandi getur hjálpað okkur í vörninni. Hann hefur reynslu af breska boltanum með Rangers. Eftir það hefur hann spilað með Frankfurt og gríska landsliðinu.
Hann er sterkur í loftinu, kraftmikill og grimmur. Við erum að leita að leikmanni með reynslu. Hann gengst undir læknisskoðun, hann verður að gera það fyrir helgi."
Hugsanlegt er að hann verði í leikmannahópnum fyrir leikinn gegn Aston Villa á mánudagskvöld.
TIL BAKA
Kaupin á Kyrgiakos staðfest
Liverpool hefur staðfest að búið sé að semja við gríska varnarmanninn Sotirios Kyrgiakos. Hann á aðeins eftir að standast læknisskoðun og er búist við að hann geri það fyrir helgi. Talið er að kaupverðið sé um 2,5 milljónir punda.Á vefsíðu AEK birtist eftirfarandi yfirlýsing. "Við virðum ákvörðun hans því við höfum oft lýst því yfir að við viljum ekki standa í vegi fyrir þeim leikmanni sem vill fara frá félaginu. Skiptir þá engu hver ástæðan er. En brottför Sotirios Kyrgiakos gæti ekki hafa komið á verri tíma fyrir félagið."
Eins og við greindum frá í gær voru þá allar líkur taldar á að kappinn væri á leið til félagsins. Ljóst var að þörfin væri töluverð, enda mikil meiðsli hjá miðvörðum liðsins. Til að mynda varð Benítez að tefla fram hinum unga Daniel Ayala í leiknum gegn Stoke í kvöld.
Rafael Benítez staðfesti eftir þann leik að Kyrgiakos, sem nú leikur með AEK Aþenu, væri að koma. "Við erum nánast búnir að ganga frá samningnum með fyrirvara um að hann standist læknisskoðun. Hann er leikmaður með reynslu sem vonandi getur hjálpað okkur í vörninni. Hann hefur reynslu af breska boltanum með Rangers. Eftir það hefur hann spilað með Frankfurt og gríska landsliðinu.
Hann er sterkur í loftinu, kraftmikill og grimmur. Við erum að leita að leikmanni með reynslu. Hann gengst undir læknisskoðun, hann verður að gera það fyrir helgi."
Hugsanlegt er að hann verði í leikmannahópnum fyrir leikinn gegn Aston Villa á mánudagskvöld.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

