| SSteinn
TIL BAKA
Næstu ferðir klúbbsins
Þá er komið að fyrstu ferðum Liverpoolklúbbsins á Íslandi fyrir tímabilið 2009-2010. VITA er nýr samstarfsaðili Liverpoolklúbbsins. Samstarfið byggir á traustum grunni þar sem Lúðvík Arnarson, sem var í forsvari fyrir íþróttadeild Úrvals Útsýnar, hefur nú fært sig um set yfir á VITA með sitt samstarfsfólk. Skipulag ferðanna er því í raun í höndum sömu aðila, en núna undir vörumerkinu VITA.
Klúbburinn hefur haft það fyrir reglu að senda tilkynningar um ferðirnar fyrst á póstlista greiddra meðlima í Liverpoolklúbbnum. Þar sem um takmarkað miðaframboð er um að ræða, þá er nokkuð víst að aðeins greiddir meðlimir komast í ferðirnar, enda eru þeir í algjörum forgangi. Við viljum hvetja alla áhugasama að ganga frá greiðslu sinni í klúbbinn sem allra fyrst og eins að hafa samband við VITA strax. Það verður vel farið yfir bókanir í þessar ferðir og þær bornar saman við félagatal klúbbsins til að tryggja að greiddir meðlimir hafi algjöran forgang. Athygli er vakin á því að árgjald klúbbsins hefur verið hækkað úr kr. 2.500 í kr. 3.000. Fjölskylduaðild hefur hækkað í kr. 1.500 fyrir hvern umfram fyrsta meðlim.
Um er að ræða þrjá sannkallaða stórleiki, Man.Utd, Man.City og Arsenal. Athugið að takmarkað miðaframboð er í ferðirnar og um að gera að hafa hraðar hendur.
Liverpool v Man.Utd 23. - 26. október - UPPSELD
Liverpool v Man.City 20. - 23. nóvember
Liverpool v Arsenal 11. -14. desmber
Flug
Föstudagur KEF MAN FI 436 8:00 10:35
Mánudagur MAN KEF FI 436 11:25 15:40 milllent í Glasgow
Gisting
Jurys Inn
31 Keel Wharf, Kings Waterfrond
L3 4FN
Liverpool
Verð: 97.500 kr. á mann í tvíbýli
Innifalið: Flug, skattar, gisting í 3 nætur með morgunverði, rútur til og frá flugvelli og miði á völlinn
Verð í einbýli 126.000 kr.
á barn yngri en 12 í triple = 77.500 kr.
á barn yngri en 12 í twin = 91.500 kr.
Til að bóka - senda email á [email protected]
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

